{"id":1143,"date":"2007-05-07T00:00:00","date_gmt":"2007-05-07T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/?p=1143"},"modified":"2020-09-22T14:18:51","modified_gmt":"2020-09-22T14:18:51","slug":"thad-eina-sem-their-skilja","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/?p=1143","title":{"rendered":"\u00deA\u00d0 EINA SEM \u00deEIR SKILJA"},"content":{"rendered":"<p>Til \u00feess er l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i\u00f0 og r\u00e9ttarr\u00edki\u00f0 a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir spillingu valdaeinokunar. Hvorugt er sj\u00e1lfgefi\u00f0. Hvorugt hefur \u00e1unnist \u00ed eitt skipti fyrir \u00f6ll. A\u00f0hald a\u00f0 valdh\u00f6fum krefst st\u00f6\u00f0ugrar \u00e1rvekni kj\u00f3senda, stj\u00f3rnarandst\u00f6\u00f0u, fj\u00f6lmi\u00f0la. Vald kj\u00f3senda er \u00ed \u00fev\u00ed f\u00f3lgi\u00f0 a\u00f0 geta skipt \u00fat valdh\u00f6fum me\u00f0 reglulegu millibili. \u00dea\u00f0 kemur \u00ed veg fyrir, a\u00f0 valdhafarnir umgangist valdi\u00f0 sem sj\u00e1lfgefi\u00f0.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<h2>Sama valdakl\u00edkan hj\u00e1 r\u00edki og borg.<\/h2>\n<p>\u00deeir sem \u00e6tla a\u00f0 kj\u00f3sa Sj\u00e1lfsft\u00e6\u00f0isflokkinn \u00ed vor, \u00e6ttu a\u00f0 hafa \u00ed huga, a\u00f0 \u00fear me\u00f0 kj\u00f3sa \u00feeir a\u00f0 framlengja \u00edt\u00f6k \u00feess valdah\u00f3ps \u00e1 r\u00edkisvaldinu \u00ed tvo \u00e1ratugi samfellt. \u00deeir sem \u00e6tla a\u00f0 kj\u00f3sa Frams\u00f3knarflokkinn, eru \u00fear me\u00f0, vitandi vits, a\u00f0 tryggja f\u00e1mennum h\u00f3pi me\u00f0 sterk \u00edt\u00f6k \u00ed fj\u00e1rm\u00e1lal\u00edfi \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00e1framhaldandi t\u00f6k \u00e1 r\u00edkisvaldinu \u00ed fj\u00f6gur kj\u00f6rt\u00edmabil samfellt.<\/p>\n<p>Kj\u00f3sendum v\u00e6ri hollt a\u00f0 hafa \u00ed huga, a\u00f0 \u00feessir flokkar skipta l\u00edka me\u00f0 s\u00e9r v\u00f6ldum \u00ed h\u00f6fu\u00f0borginni, \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 \u00fea\u00f0 \u00ed krafti meirihluta atkv\u00e6\u00f0a. \u00de\u00f3tt Frams\u00f3knarflokkur-<br>\ninn s\u00e9 n\u00e6rri \u00feorrinn fylgi \u00ed h\u00f6fu\u00f0borginni, t\u00f3kst honum a\u00f0 s\u00f6lsa undir sig drj\u00fagan hlut af valdakerfi h\u00f6fu\u00f0borgarinnar. Vilja kj\u00f3sendur, vitandi vits, framlengja valdaeinokun \u00feessa f\u00e1mennish\u00f3ps fj\u00f3r\u00f0a kj\u00f6rt\u00edmabili\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0?<\/p>\n<p>Kj\u00f3sendum v\u00e6ri l\u00edka hollt a\u00f0 hafa \u00ed huga, a\u00f0 allir fj\u00f6lmi\u00f0lar landsins, sem m\u00e1li skipta, eru undir stj\u00f3rn manna, sem eru handgengnir \u00feessum valdah\u00f3pum. Er \u00fea\u00f0 hollt l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0inu? Er \u00fea\u00f0 v\u00e6nleg lei\u00f0 til a\u00f0 tryggja valdh\u00f6fum nau\u00f0synlegt a\u00f0hald? E\u00f0a erum vi\u00f0, \u00cdslendingar, af einhverjum \u00e1st\u00e6\u00f0um svo vammlaust f\u00f3lk, a\u00f0 vi\u00f0 \u00feurfum ekki a\u00f0 \u00f3ttast, a\u00f0 spilling geti nokkru sinni \u00ferifist \u00ed skj\u00f3li valdsins \u00ed okkar f\u00e1menna \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi? Tr\u00faum vi\u00f0 \u00fev\u00ed virkilega? Kemur \u00fea\u00f0 heim og saman vi\u00f0 reynslu okkar af stj\u00f3rnarfarinu \u00e1 valdat\u00edma n\u00faverandi stj\u00f3rnarflokka?<\/p>\n<h2>P\u00f3lit\u00edsk eignarhaldsf\u00e9l\u00f6g?<\/h2>\n<p>\u00deess eru vissulega d\u00e6mi \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1las\u00f6gu l\u00fd\u00f0veldisins, a\u00f0 au\u00f0menn hafi s\u00f3ttst eftir p\u00f3lit\u00edskum v\u00f6ldum. En \u00e9g \u00feekkti engin d\u00e6mi \u00feess, a\u00f0 forystumenn \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum hafi beinl\u00ednis au\u00f0gast af stj\u00f3rnm\u00e1la\u00fe\u00e1ttt\u00f6ku sinni. E\u00f0a gert s\u00e9r p\u00f3lit\u00edkina a\u00f0 f\u00e9\u00fe\u00fafu. \u00c1 stj\u00f3rnart\u00edma Frams\u00f3knarflokksins s.l. t\u00f3lf \u00e1r eru \u00feess hins vegar d\u00e6mi, a\u00f0 fyrrverandi forystumenn flokksins, sem og skj\u00f3lst\u00e6\u00f0ingar hans \u00ed fj\u00e1rm\u00e1laheiminum, hafi au\u00f0gast pers\u00f3nulega vegna stj\u00f3rnvaldsa\u00f0ger\u00f0a, sem \u00feeir hafa sta\u00f0i\u00f0 fyrir e\u00f0a haft \u00e1hrif \u00e1. \u00dea\u00f0 er alvarlegt m\u00e1l fyrir l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed landinu, \u00feegar stj\u00f3rnm\u00e1laflokkar \u00ed landinu eru or\u00f0nir eins konar eignarhaldsf\u00e9l\u00f6g um fj\u00e1rhagslega hagsmuni forystumanna og skj\u00f3lst\u00e6\u00f0inga \u00feeirra.<\/p>\n<p>\u00cd DV 4. ma\u00ed, s.l. er vi\u00f0tal vi\u00f0 Arn\u00fer\u00fa\u00f0i Karlsd\u00f3ttur, fv. vara\u00feingmann Finns Ing\u00f3lfssonar, af \u00fev\u00ed tilefni, a\u00f0 h\u00fan sag\u00f0i sig \u00far Frams\u00f3knarflokknum eftir \u00e1ratuga starf, enda b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 sig fullsadda af spillingunni . Arn\u00fer\u00fa\u00f0ur segir:<\/p>\n<p><i>\u201c\u00cd m\u00ednum huga \u00e6tti a\u00f0 setja ehf. fyrir aftan Frams\u00f3knarflokkinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er eignarhaldsf\u00e9lag en ekki stj\u00f3rnm\u00e1laflokkur. \u00cd Frams\u00f3knarflokknum er f\u00f3lk a\u00f0 maka kr\u00f3kinn, leggja undir sig g\u00e6\u00f0i \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu og menn s\u00e6kjast meira \u00ed \u00fea\u00f0 en a\u00f0 vinna a\u00f0 stj\u00f3rnm\u00e1lastefnu fyrir f\u00f3lki\u00f0 \u00ed landinu. \u00dea\u00f0 hefur fari\u00f0 mj\u00f6g versnandi.\u201d <\/i><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er \u00e1st\u00e6\u00f0ulaust a\u00f0 rengja Arn\u00fer\u00fa\u00f0i. H\u00fan talar af langri reynslu. \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 sorgarsaga, \u00feegar stj\u00f3rnm\u00e1laflokkur sem eitt sinn \u00e1tti s\u00e9r hugsj\u00f3nir og naut tr\u00fana\u00f0ar hei\u00f0arlegs f\u00f3lks, breytist \u00ed \u00farhrak af \u00feessu tagi. Hagsmunavarsla samstarfsflokksins er ekki s\u00ed\u00f0ur har\u00f0dr\u00e6g, en h\u00fan er s\u00ed\u00f0ur s\u00fdnileg, enda r\u00e9ttl\u00e6tt af fj\u00f6ldafylgi.<\/p>\n<p>Sameiginlega hafa \u00feessir flokkar hrei\u00f0ra\u00f0 um sig \u00ed \u00f6llum afkimum valdakerfisins: Hj\u00e1 r\u00edkisvaldinu, \u00ed borgarkerfinu, \u00ed helstu fj\u00e1rm\u00e1lastofnunum, vi\u00f0 ritstj\u00f3rn r\u00e1\u00f0andi fj\u00f6lmi\u00f0la og hj\u00e1 samt\u00f6kum atvinnul\u00edfsins. \u00deetta er \u00fe\u00e9ttri\u00f0i\u00f0 valdanet, innm\u00fara\u00f0 og innv\u00edgt. \u00dea\u00f0 skiptir atvinnul\u00edfinu \u00ed \u00e1hrifasv\u00e6\u00f0i, einkav\u00e6\u00f0ir samkv\u00e6mt helmingaskiptareglu, \u00fathlutar gjafakv\u00f3tum og r\u00e6\u00f0ur \u00ed toppst\u00f6\u00f0ur hj\u00e1 hinu opinbera samkv\u00e6mt flokkssk\u00edrteinum. N\u00e6st \u00e6tla \u00feeir a\u00f0 s\u00f6lsa undir sig orkulindirnar.<\/p>\n<p>Valdi\u00f0 spillir. Allsherjarvald spillir algerlega. Vilji kj\u00f3sendur varast a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a spillingunni heim, er a\u00f0eins eitt til r\u00e1\u00f0a: A\u00f0 beita valdi kj\u00f3sandans til a\u00f0 skipta um valdhafa. \u00c1 mannam\u00e1li villta vestursins h\u00e9t \u00feetta \u201cto throw the rascals out\u201d. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 lokum \u00fea\u00f0 eina, sem \u00feeir skilja.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 er sagt, a\u00f0 allt vald spilli. Og a\u00f0 allsherjarvald spilli algerlega. Valdhafar sem venjast \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u f\u00e6ddir til valda, og a\u00f0 f\u00e1tt e\u00f0a ekkert geti hr\u00f3fla\u00f0 vi\u00f0 v\u00f6ldum \u00feeirra, ganga yfirleitt \u00e1 lagi\u00f0. \u00dea\u00f0 b\u00fd\u00f0ur spillingunni heim. <\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[1,9],"tags":[],"class_list":["post-1143","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allar_greinar","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1143","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1143"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1143\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2927,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1143\/revisions\/2927"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1143"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1143"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1143"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}