{"id":1198,"date":"2009-04-23T00:00:00","date_gmt":"2009-04-23T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/?p=1198"},"modified":"2020-09-22T13:38:09","modified_gmt":"2020-09-22T13:38:09","slug":"engin-framtidarsyn-engin-politik","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/?p=1198","title":{"rendered":"ENGIN FRAMT\u00cd\u00d0ARS\u00ddN &#8211; ENGIN P\u00d3LIT\u00cdK"},"content":{"rendered":"<p>En b\u00ed\u00f0i\u00f0 h\u00e6g:  Eftirspurnin var n\u00e6g, samstarfsa\u00f0ilinn var f\u00fas og samkeppnish\u00e6fnin \u2013 l\u00e1gt gengi kr\u00f3nunnar \u2013 \u00ed toppi. Samt gekk \u00feetta ekki. Hva\u00f0 var a\u00f0? V\u00f6ntun \u00e1 noth\u00e6fum gjaldmi\u00f0li, \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 sem var a\u00f0. Hvorki seljandi n\u00e9 kaupandi treysti s\u00e9r \u00ed fj\u00e1rh\u00e6ttuspil me\u00f0 \u00edslensku kr\u00f3nuna, eins og \u00feeir or\u00f0u\u00f0u \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfir.A\u00f0 vita ekki fr\u00e1 degi til dags, hvort evran kostar 88 kr\u00f3nur e\u00f0a 250 kr\u00f3nur e\u00f0a eitthva\u00f0 \u00fear \u00e1 milli.<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00deetta er vandi \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00ed hnotskurn. \u00deessi litla fr\u00e9tt segir meira en m\u00f6rg or\u00f0. H\u00fan segir vissulega meira en allt bla\u00f0ri\u00f0 sem hellt hefur veri\u00f0 yfir \u00fej\u00f3\u00f0ina \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0laumr\u00e6\u00f0unni fyrir kosningarnar \u00e1 laugardaginn. S\u00e1 sem skilur, hvers vegna d\u00edllinn um bj\u00f3r\u00fatflutning til Bretlands datt upp fyrir, skilur um lei\u00f0, hvers vegna vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 byrja samningavi\u00f0r\u00e6\u00f0ur um a\u00f0ild a\u00f0 Evr\u00f3pusambandinu og uppt\u00f6ku evru strax &#8211;  daginn eftir kosningar.<\/p>\n<p>Hva\u00f0 \u00e1 \u00e9g vi\u00f0? \u00deetta er spurningin um \u00fea\u00f0, hvernig st\u00f6rf ver\u00f0a til. Ef \u00fe\u00fa veist eitthva\u00f0 um \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 veistu hvernig \u00e1 a\u00f0 \u00fatr\u00fdma atvinnuleysi. Ef st\u00f6rfum fj\u00f6lgar og atvinnuleysi minnkar, \u00fe\u00e1 ver\u00f0a til tekjur. Tekjur standa undir eftirspurn, sem kallar eftir framlei\u00f0slu, \u00fej\u00f3nustu og vi\u00f0skiptum, sem skapar meiri tekjur. \u00dea\u00f0 er svona sem \u00cdslendingar \u00feurfa a\u00f0 vinna sig \u00fat \u00far hruninu.Og \u00fea\u00f0 er einmitt \u00fea\u00f0 sem er ekki a\u00f0 gerast, eins og sagan um bj\u00f3rd\u00edlinn, sem datt upp fyrir, s\u00fdnir \u00ed hnotskurn. \u00dea\u00f0 er ekki a\u00f0 gerast af \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum ekki noth\u00e6fan gjaldmi\u00f0il til \u00feess a\u00f0 geta stunda\u00f0 vi\u00f0skipti.<\/p>\n<p>Hvernig ver\u00f0a st\u00f6rf til? \u00deau ver\u00f0a til \u00ed fyrirt\u00e6kjum. Reynum a\u00f0 setja okkur \u00ed spor \u00feeirra, sem eru a\u00f0 reyna a\u00f0 reka fyrirt\u00e6ki \u00e1 \u00cdslandi \u00ed dag (og \u00fear me\u00f0 a\u00f0 skapa st\u00f6rf). A\u00f0 reka fyrirt\u00e6ki byggist a\u00f0 lokum \u00e1 \u00e1rei\u00f0anlegum uppl\u00fdsingum. Vi\u00f0skiptahugmynd er \u00ed reynd \u00e1\u00e6tlun fram \u00ed t\u00edmann. \u00c1rangurinn fer eftir \u00fev\u00ed, hvort \u00e1\u00e6tlunin stenst e\u00f0a ekki. \u00de\u00fa \u00fearft a\u00f0 vita um ver\u00f0  \u00e1 a\u00f0f\u00f6ngum og afur\u00f0um. \u00de\u00fa \u00fearft a\u00f0 geta reitt \u00feig \u00e1, a\u00f0 \u00e1\u00e6tlanir um tekjur og gj\u00f6ld standist. \u00de\u00fa \u00fearft a\u00f0 vita, hver er grei\u00f0slubyr\u00f0in af skuldum. Au\u00f0vita\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 fara n\u00e1nar \u00fat \u00ed \u00feessa s\u00e1lma, en \u00feetta n\u00e6gir til a\u00f0 koma meiningunni til skila.<\/p>\n<p>Ef \u00fe\u00fa veist ekki fr\u00e1 degi til dags, hverjar eru tekjur \u00fe\u00ednar e\u00f0a gj\u00f6ld, \u00fe\u00e1 er tilraun \u00feinni til a\u00f0 reyna a\u00f0 reka fyrirt\u00e6ki r\u00e9tt l\u00fdst: Fj\u00e1rh\u00e6ttuspil.  Fj\u00e1rh\u00e6ttuspil er handa f\u00edklum. \u00dea\u00f0 \u00e1 ekkert skylt vi\u00f0 a\u00f0 reka fyrirt\u00e6ki. \u00dea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 reka fyrirt\u00e6ki, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 heldur a\u00f0 byggja upp traust fyrirt\u00e6ki til langs t\u00edma, nema \u00e1 grundvelli st\u00f6\u00f0ugleika. Samkeppnish\u00e6fni er lykilhugtak. \u00dea\u00f0 skiptir ekki \u00f6llu m\u00e1li, hvort \u00fe\u00fa framlei\u00f0ir fyrir heimamarka\u00f0 e\u00f0a flytur \u00fat. \u00cd hvoru tilvikinu sem er, \u00fearftu a\u00f0 standast samkeppni. Og \u00fea\u00f0 gerir \u00fe\u00fa einfaldlega ekki me\u00f0 gjaldmi\u00f0il, sem heldur ekki gildi s\u00ednu fr\u00e1 degi til dags.<\/p>\n<p>\u00c9g l\u00e1i ekki minni elskulegu \u00fej\u00f3\u00f0, \u00fe\u00f3tt h\u00fan hrynji ofan \u00ed dj\u00fapt \u00feunglyndiskast vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a f\u00f3rnarlamb augl\u00fdsingastr\u00ed\u00f0sins og klisjukeppninnar, sem gengur undir nafninu kosningabar\u00e1tta. Eru kj\u00f3sendur einhverju n\u00e6r um vitiborin sv\u00f6r vi\u00f0 \u00feessari einf\u00f6ldu spurningu: Hvernig \u00e1 a\u00f0 b\u00faa til st\u00f6rf. 20 \u00fe\u00fasund st\u00f6rf handa \u00feeim sem \u00feegar hafa misst vinnuna? \u00de\u00fasundir annarra starfa handa unga f\u00f3lkinu, sem kemur inn \u00e1 vinnumarka\u00f0inn \u00e1 n\u00e6stu \u00e1rum? Vita menn ekki a\u00f0 fyrirt\u00e6ki, sem eru sokkin \u00ed skuldir, \u00feurfa endurfj\u00e1rm\u00f6gnun? Vita menn ekki a\u00f0 til \u00feess a\u00f0 fj\u00e1rfesta \u00ed framlei\u00f0slut\u00e6kjum, \u00fearf a\u00f0gang a\u00f0 l\u00e1nsf\u00e9? Vita menn ekki, a\u00f0 l\u00e1nsfj\u00e1rmarka\u00f0ir eru \u00cdslendingum loka\u00f0ir; a\u00f0 vi\u00f0 nj\u00f3tum einskis l\u00e1nstrausts; a\u00f0 erlent fj\u00e1rmagn er \u00f3f\u00e1anlegt a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u201cfj\u00e1rh\u00e6ttuspilinu?\u201d<\/p>\n<p>Vita menn ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekkert \u00e1l \u00e1 dagskr\u00e1? Vita menn ekki a\u00f0 eftirspurn eftir \u00e1li fer \u00feverrandi og a\u00f0 \u00e1lver\u00f0 er hruni\u00f0? Vita menn ekki a\u00f0 p\u00f3lit\u00edkusarnir sem st\u00fdr\u00f0u \u00cdslandi \u00ed hrun, munu ekki b\u00faa til nein n\u00fd st\u00f6rf? Vita menn ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir ekkert a\u00f0 hverfa aftur til fort\u00ed\u00f0ar? Vita menn ekki a\u00f0 r\u00edkisrekinn landb\u00fana\u00f0ur og skuldum hla\u00f0inn sj\u00e1var\u00fatvegur munu hvorugt b\u00faa til \u00feau st\u00f6rf, sem \u00fearf til a\u00f0 halda hinum atvinnulausu \u00ed landinu?  Sj\u00e1 menn ekki, hversu aumkunarvert rifrildi\u00f0 \u00ed m\u00fasarholunni er?<\/p>\n<p>Skilja menn ekki a\u00f0 p\u00f3lit\u00edk, sem hefur enga framt\u00ed\u00f0ars\u00fdn, er engin p\u00f3lit\u00edk &#8211;  heldur bara bla\u00f0ur? Er f\u00f3lki ofvi\u00f0a a\u00f0 skilja a\u00f0 einmitt af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 tekur t\u00edma a\u00f0 semja um Evr\u00f3pusambandi\u00f0 og a\u00f0 \u00e1vinna okkur r\u00e9tt til a\u00f0 taka upp evru \u2013 einmitt \u00feess vegna \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja um strax. L\u00f6ng fer\u00f0 byrjar \u00e1 fyrsta skrefinu. S\u00e1 sem aldrei st\u00edgur fyrsta skrefi\u00f0, fer aldrei \u00ed fer\u00f0alagi\u00f0.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/eyjan.is\/silfuregils\/2009\/04\/23\/engin-framtidarsyn-engin-politik\/\" target=\"top\" rel=\"noopener noreferrer\">Umm\u00e6li vi\u00f0 grein \u00e1 eyjan.is<\/a>.<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Veruleikafirrt kosningabar\u00e1tta:<br \/>\nT\u00f3ku\u00f0 \u00fei\u00f0 eftir sm\u00e1fr\u00e9tt \u00ed h\u00e1deginu \u00ed dag? \u00d6lger\u00f0in hefur a\u00f0 undanf\u00f6rnu veri\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 n\u00e1 samningum um marka\u00f0ssetningu \u00e1 \u00edslenskum bj\u00f3r \u00e1 breska marka\u00f0num. Sumir mundu halda a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri, eins og sagt var \u00ed enskukennslub\u00f3kunum \u00ed gamla daga, \u201cto carry coal to Newcastle\u201d \u2013 bj\u00f3r til Bretlands! <\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[1,9],"tags":[],"class_list":["post-1198","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allar_greinar","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1198","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1198"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1198\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2843,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1198\/revisions\/2843"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1198"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1198"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1198"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}