{"id":1282,"date":"2011-06-05T00:00:00","date_gmt":"2011-06-05T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/staging.jbh.is\/?p=1282"},"modified":"2020-09-22T12:39:54","modified_gmt":"2020-09-22T12:39:54","slug":"styrmir-gunnarsson-ummaeli-2-vid-greinina-in-search-of-freedom-its-all-about-equality-stupid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/?p=1282","title":{"rendered":"Styrmir Gunnarsson:  Umm\u00e6li 2 vi\u00f0 greinina In Search of Freedom: IT\u00b4S ALL ABOUT EQUALITY, STUPID!"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd br\u00e9fi m\u00ednu til ykkar hinn 15. ma\u00ed sl. sag\u00f0i \u00e9g um \u00feessa r\u00e6\u00f0u:<\/p>\n<p>\u201c\u00deetta er mj\u00f6g f\u00edn r\u00e6\u00f0a en \u00ed henni eru \u00fe\u00f3 veikleikar. S\u00f6gusk\u00fdring h\u00f6fundar \u00e1 bls. 8 gengur ekki upp.\u201d<\/p>\n\n\n<!--more Lesa meira-->\n\n\n<p>\u00cd br\u00e9fi \u00fe\u00ednu fr\u00e1 24. ma\u00ed sl. segir \u00fe\u00fa:<\/p>\n<p>\u201c\u00cd athugasemdum \u00fe\u00ednum vi\u00f0 r\u00e6\u00f0una segir \u00fe\u00fa okkur jafna\u00f0armenn hafa \u201clagt grundv\u00f6ll a\u00f0 valdat\u00f6ku peninganna \u00e1 \u00cdslandi\u201d. \u00deetta eigum vi\u00f0 a\u00f0 hafa gert vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 sam\u00feykktum framsal vei\u00f0iheimilda innan kv\u00f3takerfisins-me\u00f0 skilyr\u00f0um \u2013 \u00e1ri\u00f0 1990. \u00deetta br\u00e1\u00f0um 30 \u00e1ra str\u00ed\u00f0 um kv\u00f3tann hefur alla t\u00ed\u00f0 sn\u00faizt um eignarhald \u00e1 au\u00f0lindinni. Sta\u00f0reyndirnar um afst\u00f6\u00f0u okkar jafna\u00f0armanna eru \u00feessar: \u00dea\u00f0 vorum vi\u00f0 sem kn\u00fa\u00f0um \u00fea\u00f0 fram a\u00f0 au\u00f0lindin var l\u00fdst \u00fej\u00f3\u00f0areign a\u00f0 l\u00f6gum.\u201d<\/p>\n<p>\u00c1greiningur minn vi\u00f0 \u00feig sn\u00fdst um l\u00fdsingu \u00fe\u00edna \u00ed \u00feeirri r\u00e6\u00f0u \u00feinni, sem h\u00e9r er til umr\u00e6\u00f0u \u00e1 \u00fev\u00ed sem ger\u00f0ist me\u00f0 kv\u00f3tann. Hva\u00f0 ger\u00f0ist?<\/p>\n<p>Hin upphaflegu kv\u00f3tal\u00f6g voru sam\u00feykkt \u00e1 Al\u00feingi fyrir lok \u00e1rs 1983. \u00de\u00fa \u00e6ttir a\u00f0 lesa \u00feessar umr\u00e6\u00f0ur yfir aftur n\u00fa br\u00e1\u00f0um \u00feremur \u00e1ratugum seinna. \u00dea\u00f0 er mj\u00f6g fr\u00f3\u00f0legt. \u00de\u00e6r sn\u00faast minnst um \u00fea\u00f0 sem m\u00e1li skiptir, ef fr\u00e1 er talinn Gu\u00f0mundur Einarsson, sem sag\u00f0i m.a.:<\/p>\n<p>\u201c\u00c9g tel a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00f3hugsandi a\u00f0 Al\u00feingi geti e\u00f0a megi framselja umr\u00e1\u00f0ar\u00e9tt \u00fej\u00f3\u00f0arinnar yfir \u00feessum au\u00f0lindum skilyr\u00f0islaust. \u00c9g tel a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi raunar ekki til \u00feess neitt umbo\u00f0&#8230;Um seinna atri\u00f0i\u00f0, \u00fear \u00e1 \u00e9g vi\u00f0 reglur um me\u00f0h\u00f6ndlun og framsal kv\u00f3ta, vil \u00e9g segja \u00fea\u00f0, a\u00f0 \u00fea\u00f0 eina, sem fram hefur komi\u00f0 \u00ed vi\u00f0t\u00f6lum sj\u00e1var\u00fatvegsnefndar vi\u00f0 h\u00e6stvirtan sj\u00e1var\u00fatvegsr\u00e1\u00f0herra \u00ed \u00feessu efni er, a\u00f0 hann mun ekki leyfa beina s\u00f6lu kv\u00f3ta. \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 eina, sem hefur komi\u00f0 fram. \u00dearna tel \u00e9g a\u00f0 Al\u00feingi eigi aftur a\u00f0 marka grundvallarreglur. \u00dearna erum vi\u00f0 a\u00f0 tala um me\u00f0fer\u00f0 og \u00fathlutun \u00e1 svo st\u00f3rkostlegum au\u00f0\u00e6fum a\u00f0 \u00fea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 setja \u00fear stefnumarkandi reglur um.\u201d<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur Einarsson talar \u00fearna af \u00f3tr\u00falegri frams\u00fdni um \u00fea\u00f0 sem g\u00e6ti gerzt og \u00e6tti a\u00f0 gera hann a\u00f0 hei\u00f0ursborgara hins \u00edslenzka samf\u00e9lags fyrir \u00feessa r\u00e6\u00f0u. En honum hefur enginn s\u00f3mi veri\u00f0 s\u00fdndur eins og vi\u00f0 m\u00e1tti b\u00faast.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessum s\u00f6mu umr\u00e6\u00f0um kom fram tillaga \u00ed fyrsta sinn um a\u00f0 l\u00f6gfesta sameign \u00fej\u00f3\u00f0arinnar \u00e1 fiskimi\u00f0unum. H\u00fan kom fram \u00ed ne\u00f0ri deild og \u00fea\u00f0 voru \u00feeir Steingr\u00edmur J. Sigf\u00fasson, Geir Gunnarsson og Hj\u00f6rleifur Guttormsson, sem hana fluttu. \u00deeir voru \u00fe\u00e1 \u00feingmenn Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagsins.<\/p>\n<p>\u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 var sama tillaga flutt \u00ed Efri deild. Hana fluttu Sk\u00fali Alexandersson, Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalagi, Karl Steinar Gu\u00f0nason, Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokki, Sigr\u00ed\u00f0ur D\u00fana Kristmundsd\u00f3ttir fr\u00e1 Kvennalista og Kolbr\u00fan J\u00f3nsd\u00f3ttir fr\u00e1 Bandalagi jafna\u00f0armanna.<\/p>\n<p>Tillagan var ekki miki\u00f0 r\u00e6dd \u00ed umr\u00e6\u00f0unum en Svavar Gestsson lag\u00f0i \u00fe\u00f3 til a\u00f0 efni hennar yr\u00f0i teki\u00f0 upp \u00ed stj\u00f3rnarskr\u00e1.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 voru svo \u00fei\u00f0 Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokksmenn sem h\u00f6f\u00f0u\u00f0 frumkv\u00e6\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00e1 \u00feessu \u00e1kv\u00e6\u00f0i inn \u00ed l\u00f6g \u00ed desember 1987 og hefur svo \u00e9g viti til enginn reynt a\u00f0 hafa \u00feann hei\u00f0ur af ykkur.<\/p>\n<p>Svo kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed lykilatri\u00f0i, sem \u00e9g geri \u00e1greining vi\u00f0 \u00feig um hvernig \u00fe\u00fa fjalla\u00f0ir um  \u00ed r\u00e6\u00f0u \u00feinni. \u00dea\u00f0 var r\u00edkisstj\u00f3rn Steingr\u00edms Hermannssonar, sem beitti s\u00e9r fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa hi\u00f0 svonefnda framsal frj\u00e1lst \u00e1ri\u00f0 1990. \u00cd \u00feeirri r\u00edkisstj\u00f3rn \u00e1ttu fulltr\u00faa fj\u00f3rir flokkar, Frams\u00f3knarflokkur, Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokkur, Al\u00fe\u00fd\u00f0ubandalag og Borgaraflokkur. \u00cd \u00feeirri r\u00edkisstj\u00f3rn \u00e1ttir \u00fe\u00fa sj\u00e1lfur s\u00e6ti.<\/p>\n<p>N\u00e6stu \u00e1rin \u00e1 eftir f\u00f3ru fram mikil vi\u00f0skipti me\u00f0 kv\u00f3tann, vei\u00f0iheimildir gengu manna \u00e1 milli og \u00fej\u00f6ppu\u00f0ust saman \u00e1 st\u00f6\u00f0ugt f\u00e6rri hendur en h\u00f3pur einstaklinga f\u00f3r \u00fat \u00far sj\u00e1var\u00fatveginum me\u00f0 g\u00edfurlegan hagna\u00f0 \u00e1 \u00edslenzkan m\u00e6likvar\u00f0a, alveg eins og Gu\u00f0mundur Einarsson haf\u00f0i sagt a\u00f0 mundi gerast.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem \u00e9g hef hinga\u00f0 til raki\u00f0 eru sta\u00f0reyndir, sem ekki er h\u00e6gt a\u00f0 deila um. \u00de\u00e6r eru skjalfestar \u00ed umr\u00e6\u00f0um og l\u00f6ggjafarsm\u00ed\u00f0 Al\u00feingis. Uppl\u00fdsingum um kv\u00f3tavi\u00f0skiptin hefur veri\u00f0 haldi\u00f0 til haga \u00ed vi\u00f0eigandi stofnunum.<\/p>\n<p>Svo kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 draga \u00e1lyktanir. \u00de\u00e6r \u00e1lyktanir sem \u00e9g hef dregi\u00f0 \u00ed tengslum vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem ger\u00f0ist \u00e1 n\u00e6stu tveimur \u00e1ratugum fram a\u00f0 hruni er a\u00f0 valdataka peninganna \u00e1 \u00cdslandi hafi hafizt me\u00f0 hinu frj\u00e1lsa framsali kv\u00f3tans. \u00de\u00e1 ur\u00f0u til fyrstu milljar\u00f0am\u00e6ringarnir \u00e1 \u00cdslandi. \u00deeim var gert l\u00edfi\u00f0 au\u00f0veldara me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 breyta skattal\u00f6gum \u00e1 \u00feann veg, a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu fengi\u00f0 frestun \u00e1 skattlagningu s\u00f6luhagna\u00f0ar vegna kv\u00f3tavi\u00f0skiptanna ef \u00feeir endurfj\u00e1rfestu. \u00dea\u00f0 var gert me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 stofna eignarhaldsf\u00e9l\u00f6g \u00ed L\u00faxemborg og kv\u00f3tagr\u00f3\u00f0anum var \u201cendurfj\u00e1rfest\u201d \u00ed \u00feeim. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur aldrei borga\u00f0ur skattur af \u00feeim peningum.<\/p>\n<p>\u00c9g tek \u00fea\u00f0 fram, a\u00f0 \u00e9g hef ekki kanna\u00f0 hvernig \u00fe\u00fa greiddir atkv\u00e6\u00f0i \u00e1 Al\u00feingi, \u00feegar \u00feessar skattabreytingar voru til me\u00f0fer\u00f0ar!<br>\nN\u00e6sti kap\u00edtuli \u00ed valdat\u00f6ku peninganna \u00e1 \u00cdslandi var svo einkav\u00e6\u00f0ing bankanna og \u00fear me\u00f0 var\u00f0 h\u00fan alger.<\/p>\n<p>\u00deetta eru r\u00f6k m\u00edn fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 svonefndir vinstri flokkar \u00e1 \u00cdslandi sem  hef\u00f0u \u201clagt grundv\u00f6ll a\u00f0 valdat\u00f6ku peninganna \u00e1 \u00cdslandi.\u201d<\/p>\n<p>\u00deegar \u00fe\u00fa segir a\u00f0 \u201cthose young idealists immediately proceeded with implementing their programme according to the book. They privatized the fish quotas and handed them out for free to favoured companies\u201d tel \u00e9g a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 einfaldlega ekki r\u00e9tt.<\/p>\n<p>\u00deeir ger\u00f0u \u00fea\u00f0 ekki. \u00dei\u00f0, sem s\u00e1tu\u00f0 \u00ed r\u00edkisstj\u00f3rn Steingr\u00edms Hermannssonar ger\u00f0u\u00f0 \u00fea\u00f0. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram, a\u00f0 \u00feessir \u201cyoung idealists\u201d hafi \u00e1tt s\u00e6ti \u00ed r\u00edkisstj\u00f3rn \u00feegar mestu kv\u00f3tavi\u00f0skiptin f\u00f3ru fram \u00ed kj\u00f6lfar l\u00f6ggjafar vinstri stj\u00f3rnar um hi\u00f0 frj\u00e1lsa framsal en \u00fea\u00f0 voru fleiri sem \u00e1ttu s\u00e6ti \u00ed \u00feeirri r\u00edkisstj\u00f3rn. Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokkurinn undir \u00feinni forystu sat \u00ed \u00feeirri r\u00edkisstj\u00f3rn me\u00f0 \u00feessum \u201cungu hugsj\u00f3nam\u00f6nnum\u201d<\/p>\n<p>M\u00e9r \u00fe\u00e6tti vissulega fr\u00f3\u00f0legt a\u00f0 sj\u00e1 hvort \u00fe\u00fa getur s\u00fdnt fram \u00e1 me\u00f0 einhverjum r\u00f6kum a\u00f0 \u00feessi s\u00f6gusk\u00fdring m\u00edn s\u00e9 ekki r\u00e9tt. \u00c9g kalla \u00fea\u00f0 ekki r\u00f6k \u00feegar \u00fe\u00fa segist \u201cfr\u00e1bi\u00f0ja \u00fe\u00e9r a\u00f0 hlusta \u00e1 svona \u00e1r\u00f3\u00f0ursbull\u201d og a\u00f0 \u00fe\u00fa m\u00e6list til \u00feess a\u00f0 \u00e9g h\u00e6tti \u00feessum \u201c\u00f3hr\u00f3\u00f0ri\u201d um ykkur jafna\u00f0armenn!<\/p>\n<p>R\u00f6k, dear boy, r\u00f6k, svo vitna\u00f0 s\u00e9 til Harolds MacMillans (events, dear boy, events, a\u00f0spur\u00f0ur um hva\u00f0 g\u00e6ti breytt st\u00f6\u00f0u stj\u00f3rnm\u00e1lanna).<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 m\u00e1 segja a\u00f0 sko\u00f0anaskipti af \u00feessu tagi um \u00fea\u00f0 sem li\u00f0i\u00f0 er skipti engu m\u00e1li. \u00c9g held hins vegar a\u00f0 \u00feau skipti \u00f6llu m\u00e1li. M\u00e9r s\u00fdnist ekkert vera a\u00f0 breytast \u00e1 \u00cdslandi \u00fer\u00e1tt fyrir hruni\u00f0 og \u00fea\u00f0 er h\u00f6rmulegt.<\/p>\n<p>Me\u00f0 beztu kve\u00f0ju til ykkar Brynd\u00edsar. Votta \u00fe\u00e9r sam\u00fa\u00f0 m\u00edna me\u00f0 \u00f3sigur ykkar sp\u00e6nskra jafna\u00f0armanna \u00e1 d\u00f6gunum.<\/p>\n<p>SG<\/p>\n<p>PS: \u00e9g t\u00f3k eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa uppl\u00fdstir ekki \u00ed r\u00e6\u00f0u \u00feinni hver leiddi \u201cneo-conservatives\u201d til valda \u00e1 \u00cdslandi! SG<\/p>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 bls 7-8 \u00ed r\u00e6\u00f0u \u00feinni segir \u00fe\u00fa:<\/p>\n<p>\u201cBefore the turn of the century a new generation of neo-conservative leaders, many of them with their MBAs from esteemed American Universities (hverjir eru \u00fea\u00f0? innskot SG)overtook the Conservative Party and assumed a leading role in the government og the country. They remained in power for three consecutive terms, until they were ultimately thrown our in a popular uprising, affectionately dubbed the \u201cpots- and pans\u201d revolution in early 2009.<\/p>\n<p>Having reached power those young idealists immediately proceeded with implementing their programme according to the book. They privatized the fisk quotas and handed them out for free to favoured companies.\u201d <\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[1,9],"tags":[],"class_list":["post-1282","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allar_greinar","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1282","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=1282"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1282\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2761,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/1282\/revisions\/2761"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=1282"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=1282"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=1282"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}