{"id":3008,"date":"2021-02-10T11:09:36","date_gmt":"2021-02-10T11:09:36","guid":{"rendered":"https:\/\/jbh.is\/?p=3008"},"modified":"2021-02-17T10:21:14","modified_gmt":"2021-02-17T10:21:14","slug":"rett-skal-vera-rett-um-malfrelsi-og-meidyrdi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jbh.is\/?p=3008","title":{"rendered":"R\u00c9TT SKAL VERA R\u00c9TT: UM M\u00c1LFRELSI OG MEI\u00d0YR\u00d0I"},"content":{"rendered":"\n<p><\/p>\n\n\n\n<H3>1. MEI\u00d0YR\u00d0AM\u00c1L<\/H3>\n\n\n\n<p>Me\u00f0 br\u00e9fi 9. apr\u00edl var R\u00daV (og Ald\u00edsi Schram til vara) gefinn kostur \u00e1 m\u00e1lalokum utan r\u00e9ttar, \u00fe.e. me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e1\u00f0ir a\u00f0ilar b\u00e6\u00f0ust afs\u00f6kunar \u00e1 umm\u00e6lum og vi\u00f0urkenndu a\u00f0 \u00feau v\u00e6ru r\u00f6ng og dr\u00e6gju \u00feau til baka. \u00deessu var svara\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00f6gninni.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deess vegna er mei\u00f0yr\u00f0am\u00e1l ney\u00f0ar\u00farr\u00e6\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g h\u00f6f\u00f0a \u00feetta m\u00e1l gegn R\u00daV og gegn Ald\u00edsi Schram (til vara sem heimildamanni). Vi\u00f0 f\u00f6rum \u00feess \u00e1 leit a\u00f0 tiltekin umm\u00e6li, \u00f3s\u00f6nn og \u00e6rumei\u00f0andi sem \u00feau eru, ver\u00f0i d\u00e6md \u201edau\u00f0 og \u00f3merk\u201c.<\/p>\n\n\n<p><!--more--><\/p>\n\n\n<p>Meintar sakargiftir eru \u00feessar:<\/p>\n\n\n\n<ol class=\"wp-block-list\" type=\"1\"><li>A\u00f0 \u00e9g hafi misnota\u00f0 d\u00e6tur m\u00ednar ungar kynfer\u00f0islega.<\/li><li>A\u00f0 \u00e9g hafi \u00e1stunda\u00f0 sifjaspell me\u00f0 elstu d\u00f3ttur minni, sem fullor\u00f0inni konu, \u00fear sem h\u00fan var vistu\u00f0 \u00e1 ge\u00f0deild.<\/li><li>A\u00f0 \u00e9g hafi misbeitt (\u00edmyndu\u00f0u) valdi til a\u00f0 svipta elstu d\u00f3ttur m\u00edna saklausa frelsi (siga\u00f0 \u00e1 hana l\u00f6greglu) og nau\u00f0ungarvista\u00f0 hana \u00e1 ge\u00f0deild, \u00fear sem h\u00fan s\u00e6tti (a\u00f0 m\u00ednu undirlagi) nau\u00f0ungarvistun, nau\u00f0ungarlyfjat\u00f6ku og var ranglega greind me\u00f0 ge\u00f0hvarfas\u00fdki \u00ed \u00fev\u00ed t\u00edmabundna \u00e1standi.<\/li><\/ol>\n\n\n\n<H3>2. SAMF\u00c9LAGSLEG HJ\u00c1LP E\u00d0A VALDBEITING?<\/H3>\n\n\n\n<p>Fyrst f\u00e1ein or\u00f0 um meinta <strong>misbeitingu valds<\/strong>. Sannleikurinn er s\u00e1 a\u00f0 hvorki hef \u00e9g haft sl\u00edkt vald, n\u00e9 heldur beitt sl\u00edku valdi. Nau\u00f0ungarvistun <strong>er ney\u00f0ar\u00farr\u00e6\u00f0i ge\u00f0l\u00e6knis<\/strong> var\u00f0andi me\u00f0h\u00f6ndlun sj\u00faklings, sem neitar a\u00f0 vi\u00f0urkenna veikindi s\u00edn og nau\u00f0syn l\u00e6knishj\u00e1lpar. Enginn einn l\u00e6knir, heldur fj\u00f6ldi faga\u00f0ila, kemur a\u00f0 hverri nau\u00f0ungarvistun. Fram a\u00f0 \u00e1rinu 2016 \u00feurftu a\u00f0standendur hins vegar l\u00f6gum samkv\u00e6mt a\u00f0 <strong>sam\u00feykkja<\/strong> nau\u00f0ungarvistun sj\u00faklings a\u00f0 l\u00e6knisr\u00e1\u00f0i og jafnvel a\u00f0 svifta sj\u00e1lfr\u00e6\u00f0i \u00ed ney\u00f0artilvikum. \u00deetta hefur haft h\u00f6rmulegar aflei\u00f0ingar fyrir fj\u00f6lskyldur a\u00f0standenda, eins og d\u00e6min sanna.<\/p>\n\n\n\n<p>Einmitt \u00fea\u00f0 var<strong> upphaf \u00f3g\u00e6funnar<\/strong> \u00ed okkar tilviki.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 eina sem fyrir a\u00f0standendum vakir \u00ed sl\u00edkum ney\u00f0artilvikum er a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem \u00fearf til a\u00f0 tryggja hinum sj\u00faka br\u00e1\u00f0nau\u00f0synlega l\u00e6knishj\u00e1lp. Vita\u00f0 er a\u00f0 stefnda, Ald\u00eds, hefur n\u00fdtt s\u00e9r k\u00e6rur\u00e9tt sinn og beint kl\u00f6gum\u00e1lum a\u00f0 forr\u00e1\u00f0am\u00f6nnum samf\u00e9lagsstofnana sem a\u00f0 \u00feessum m\u00e1lum koma, t.d. stj\u00f3rn LHS, ge\u00f0deild LHS, ge\u00f0l\u00e6knum, fulltr\u00faum f\u00e9lagsm\u00e1lastofnana, barnaverndarnefnda, d\u00f3msm\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti og d\u00f3msst\u00f3lum, auk l\u00f6greglu. \u00c1byrg\u00f0in er \u00feessara a\u00f0ila, ef misbrestur hefur or\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00ed framkv\u00e6md. \u00dea\u00f0 er annarra a\u00f0 d\u00e6ma um.<\/p>\n\n\n\n<H3>3. VITNISBUR\u00d0UR D\u00c6TRA OKKAR<\/H3>\n\n\n\n<p>N\u00e6st vil \u00e9g v\u00edkja nokkrum or\u00f0um a\u00f0 \u00e1s\u00f6kunum um kynfer\u00f0islega \u00e1reitni vi\u00f0 d\u00e6tur m\u00ednar ungar og a\u00f0 hafa \u00e1stunda\u00f0 sifjaspell me\u00f0 elstu d\u00f3ttur minni. \u00c9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 lei\u00f0a fram \u00ferj\u00fa vitni \u2013 nefnilega d\u00e6tur m\u00ednar \u00ferj\u00e1r.<\/p>\n\n\n\n<H4>1. Vitnisbur\u00f0ur Ald\u00edsar:<\/H4>\n\n\n\n<p>\u00cd febr\u00faar 1995 birti t\u00edmariti\u00f0 Mannl\u00edf vi\u00f0tal vi\u00f0 d\u00e6tur okkar Brynd\u00edsar, \u00fe\u00e6r Ald\u00edsi, Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i og Kolfinnu, undir fyrirs\u00f6gninni \u201e\u00der\u00edleikur Baldvinsd\u00e6tra\u201c. Bla\u00f0ama\u00f0ur spyr: \u201e<em>En hvernig er a\u00f0 eiga svona pabba og m\u00f6mmu? Gr\u00e9tu\u00f0 \u00fei\u00f0 einhvern t\u00edmann \u00ed koddana ykkar sem b\u00f6rn?\u201c<\/em>&nbsp; Sv\u00f6r systranna l\u00fdsa \u00f3neitanlega \u00e1st\u00fa\u00f0 og vinar\u00feeli \u00ed gar\u00f0 f\u00f6\u00f0ur \u00feeirra, ekki s\u00edst Ald\u00edsar:<\/p>\n\n\n\n<p>\u201e<em>\u00c9g \u00feekki ekki f\u00f6\u00f0ur minn \u00ed \u00feeirri mynd sem fj\u00f6lmi\u00f0larnir draga upp af honum: Refur, \u00f3hei\u00f0arlegur, hrokagikkur&#8230;akk\u00farat \u00fea\u00f0 sem hann ekki er. Hann er hl\u00fdr, skilningsr\u00edkur&#8230;fyrir n\u00fa utan hva\u00f0 hann er g\u00e1fa\u00f0ur og skemmtilegur\u201c.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar yngsta systirin Kolfinna gr\u00edpur framm\u00ed og segir: \u201e<em>Erum vi\u00f0 ekki or\u00f0nar of v\u00e6mnar n\u00fana stelpur?<\/em>\u201c svarar Ald\u00eds a\u00f0 brag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p><strong>\u201e<em>Sama er m\u00e9r! M\u00e1 hann ekki einhvers sta\u00f0ar nj\u00f3ta sannm\u00e6lis?\u201c<\/em><\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Ald\u00eds var <strong>36 \u00e1ra <\/strong>g\u00f6mul \u00e1ri\u00f0 1995 \u00feegar h\u00fan f\u00f3r \u00feessum lofsamlegu or\u00f0um um f\u00f6\u00f0ur sinn. \u00deetta r\u00edmar ekki vi\u00f0 \u00fea\u00f0, sem h\u00fan heldur n\u00fa fram a\u00f0 h\u00fan hafi sliti\u00f0 \u00f6llum samskiptum vi\u00f0 f\u00f6\u00f0urinn \u00e1ri\u00f0 1991. \u00dea\u00f0 er sannanlega \u00f3satt. Svo miki\u00f0 traust bar h\u00fan til f\u00f6\u00f0ur s\u00edns a\u00f0 h\u00fan gekk fr\u00e1 \u00fev\u00ed skriflega, a\u00f0 hann einn m\u00e6tti fyrir h\u00f6nd a\u00f0standenda sam\u00feykkja sj\u00e1lfr\u00e6\u00f0issviptingu hennar, ef og \u00feegar \u00e1 reyndi, eins og \u00e1 \u00e1runum 1998-2002.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>Hva\u00f0 hefur breyst?<\/strong> \u00c9g kann bara eina sk\u00fdringu \u00e1 \u00fev\u00ed. Hlutdeild m\u00edn, l\u00f6gum samkv\u00e6mt \u00fe\u00e1, \u00ed sam\u00feykkt nau\u00f0ungarvistunar \u00e1 ge\u00f0deild <em>a\u00f0 l\u00e6knisr\u00e1\u00f0i<\/em> og s\u00ed\u00f0ar bei\u00f0ni um sj\u00e1lfr\u00e6\u00f0issviptingu, \u201e<em>til \u00feess a\u00f0 h\u00fan m\u00e6tti nj\u00f3ta br\u00e1\u00f0nau\u00f0synlegrar l\u00e6knishj\u00e1lpar \u00ed erfi\u00f0um veikindum<\/em>\u201c, eins og \u00fear stendur. \u00dea\u00f0 er sk\u00fdringin. Eftir \u00fea\u00f0 vildi h\u00fan kenna m\u00e9r og fj\u00f6lskyldu okkar um \u00feessa \u00f3g\u00e6fu. H\u00fan hefur aldrei fyrirgefi\u00f0 \u00feetta.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd greinager\u00f0 sinni um verklag sj\u00fakrah\u00fass\u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 ge\u00f0fatla\u00f0a segir Engilbert Sigur\u00f0sson, yfirl\u00e6knir ge\u00f0svi\u00f0s Landsp\u00edtalans <em>\u201e&#8230;sl\u00edkar bei\u00f0nir (hafa) skili\u00f0 eftir sig s\u00e1r sem gr\u00f3a seint e\u00f0a aldrei.\u201c<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><strong>\u00deetta er okkar fj\u00f6lskylduharmleikur.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 m\u00e1 heita me\u00f0 \u00f3l\u00edkindum a\u00f0 \u00e9g heyri \u00feetta tal um sifjaspell <em>fyrst \u00ed \u00fatvarpsvi\u00f0tali \u00e1 R\u00daV<\/em> 17. jan 2019 \u00ed bo\u00f0i fr\u00e9ttamannanna Sigmars Gu\u00f0mundssonar og Helga Seljan. Ald\u00eds segist a\u00f0 v\u00edsu hafa nefnt sifjaspell \u00ed k\u00e6ru sinni til l\u00f6greglu f.h. \u00f3nafngreindra kvenna \u00e1ri\u00f0 2013.&nbsp; S\u00fa k\u00e6ra var m\u00e9r aldrei birt. \u00c9g las bara um hana \u00ed DV. \u00deegar \u00e9g grennsla\u00f0ist fyrir um afdrif k\u00e6runnar hj\u00e1 l\u00f6greglustj\u00f3raemb\u00e6ttinu var m\u00e9r tj\u00e1\u00f0 a\u00f0 k\u00e6runni (08.10.13) hef\u00f0i veri\u00f0 v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1 sem \u201e\u00f3markt\u00e6kri\u201c. S\u00fa ni\u00f0ursta\u00f0a var s\u00ed\u00f0an sta\u00f0fest af saks\u00f3knara (28.02.14).<\/p>\n\n\n\n<p>Vitnalei\u00f0slan \u00ed \u00feessari sifjaspellss\u00f6gu er me\u00f0 \u00f3l\u00edkindum. Ald\u00eds, \u00feolandinn a\u00f0 eigin s\u00f6gn, segist ekkert hafa vita\u00f0 af \u00feessu sj\u00e1lf vegna ofnotkunar lyfja. Hins vegar hafi h\u00fan heyrt \u00feennan <strong>or\u00f0r\u00f3m<\/strong> haf\u00f0an eftir <strong>sj\u00e1lfri s\u00e9r<\/strong>, \u00ed skrafinu \u00e1 ge\u00f0deild. Og h\u00fan hefur \u00fea\u00f0 eftir einhverjum a\u00f0 \u00feetta hafi veri\u00f0 \u201e\u00e1 vitor\u00f0i\u201c starfsf\u00f3lks deildarinnar. \u00c1 ma\u00f0ur a\u00f0 tr\u00faa \u00fev\u00ed a\u00f0 yfirmenn ge\u00f0deildar hafi l\u00e1ti\u00f0 sl\u00edkt afskiptalaust? E\u00f0a er veri\u00f0 a\u00f0 lj\u00faga upp \u00e1 \u00fe\u00e1? Var \u00feetta kannski afskrifa\u00f0 sem hvert anna\u00f0 \u00f3r\u00e1\u00f0shjal?<\/p>\n\n\n\n<p>Minnug loflegra umm\u00e6la um hvern mann fa\u00f0ir hennar hafi a\u00f0 geyma \u00ed bla\u00f0avi\u00f0tali 1995 er \u00fea\u00f0 harla \u00f3tr\u00faver\u00f0ugt, \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 meira sagt, a\u00f0 \u00feetta eigi a\u00f0 hafa gerst fyrir \u00feann t\u00edma. Ald\u00eds var, eins og sta\u00f0fest er af framl\u00f6g\u00f0um g\u00f6gnum hennar, vistu\u00f0 \u00e1 ge\u00f0deild nokkrum sinnum \u00e1 \u00e1runum fyrir 1995. N\u00e6stu tv\u00f6 \u00e1rin, eftir f\u00e6\u00f0ingu d\u00f3ttur hennar, naut h\u00fan a\u00f0sto\u00f0ar og eftirlits af h\u00e1lfu barnaverndar- og f\u00e9lagsm\u00e1lastofnunar. \u00dea\u00f0 er ekki fyrr en \u00e1 \u00e1runum 1998 til 2002 sem h\u00fan er aftur vistu\u00f0 \u00e1 ge\u00f0deild. \u00de\u00e1 er \u00e9g b\u00fasettur erlendis og \u00e1tti \u00fev\u00ed sannanlega ekki heimangengt til a\u00f0 vitja d\u00f3ttur minnar \u00e1 ge\u00f0deild. \u00deessi s\u00f6gubur\u00f0ur f\u00e6r \u00fev\u00ed ekki sta\u00f0ist. \u00deetta getur ekki flokkast undir anna\u00f0 en \u00f3r\u00e1\u00f0shjal.<\/p>\n\n\n\n<H4>2. Vitnisbur\u00f0ur Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ar:<\/H4>\n\n\n\n<p>\u00c1 \u00e1runum 2003-2006 \u00e1tti Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur d\u00f3ttir okkar, systir Ald\u00edsar, \u00ed hatrammri forr\u00e6\u00f0isdeilu vi\u00f0 \u00edtalskan barnsf\u00f6\u00f0ur sinn, Marco Brancaccia, um forr\u00e6\u00f0i yfir d\u00f3ttur \u00feeirra M\u00f6rtu. M\u00e1laferlin f\u00f3ru fram \u00ed \u00feremur l\u00f6ndum og var lengi vel tv\u00eds\u00fdnt um ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u. \u00cd tengslum vi\u00f0 \u00feessa forr\u00e6\u00f0isdeilu sendi Marco dreifibr\u00e9f \u00e1 \u00f6ll sendir\u00e1\u00f0 \u00cdslands og fylgdi me\u00f0 pers\u00f3nulegt br\u00e9f Ald\u00edsar til hans. Br\u00e9fi\u00f0 haf\u00f0i a\u00f0 geyma \u00edsmeygilegar dylgjur um a\u00f0 \u00e9g kynni a\u00f0 hafa misnota\u00f0 d\u00e6tur m\u00ednar ungar. A\u00f0dr\u00f3ttanir og dylgjur, en <em>nota bene<\/em> ekki fullyr\u00f0ingar. A\u00f0 v\u00edsu haf\u00f0i Ald\u00eds \u00e1\u00f0ur (2002) dylgja\u00f0 um \u00feetta \u00ed man\u00eduk\u00f6stum \u2013 en aldrei k\u00e6rt fyrr en 2013, \u00fe\u00e1 a\u00f0 eigin s\u00f6gn.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur f\u00e9kk \u00ed hendur br\u00e9f Ald\u00edsar, \u00fear sem um \u00feetta var dylgja\u00f0, br\u00e1st h\u00fan rei\u00f0 vi\u00f0 og svara\u00f0i systur sinni me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um (br\u00e9fi\u00f0 er \u00f3dagsett):<\/p>\n\n\n\n<p>&nbsp;\u201e<em>\u00de\u00f3tt me\u00f0fylgjandi br\u00e9f s\u00e9 ekki a\u00f0 koma fyrir m\u00edn augu \u00ed fyrsta sinn, br\u00e1 m\u00e9r jafnmiki\u00f0, \u00feegar \u00e9g f\u00e9kk \u00fea\u00f0 n\u00fana og \u00ed fyrra sinni\u00f0. \u00de\u00e1 var \u00e9g enn svo \u00f6rmagna eftir langa og erfi\u00f0a bar\u00e1ttu fyrir forr\u00e6\u00f0i yfir d\u00f3ttur minni, a\u00f0 \u00e9g megna\u00f0i ekki a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0. \u00dea\u00f0 brast eitthva\u00f0 innra me\u00f0 m\u00e9r, \u00feegar \u00e9g s\u00e1 fr\u00e1 hverjum \u00feessi lj\u00f3tu or\u00f0 komu. \u00c9g \u00e1tti lengi vel b\u00e1gt me\u00f0 a\u00f0 tr\u00faa \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00feetta br\u00e9f til mannsins v\u00e6ri fr\u00e1 systur minni. \u00c9g vildi ekki tr\u00faa \u00fev\u00ed, <strong>a\u00f0 \u00fe\u00fa g\u00e6tir lagst svona l\u00e1gt.<\/strong><\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g lag\u00f0i \u00feetta til hli\u00f0ar, <strong>vi\u00f0 hli\u00f0 allra hinna lj\u00f3tu p\u00f3stanna, sem m\u00e9r hafa borist \u00far s\u00f6mu \u00e1tt. <\/strong>Og reyndi a\u00f0 gleyma. En vissulega brast strengur hi\u00f0 innra me\u00f0 m\u00e9r, sem ver\u00f0ur aldrei aftur heill. En n\u00fa, \u00feegar \u00feessi soraskrif eru ger\u00f0 opinber, f\u00e6 \u00e9g ekki lengur or\u00f0a bundist. \u00dea\u00f0 er ekki lengur h\u00e6gt a\u00f0 l\u00e1ta eins og \u00fe\u00fa s\u00e9rt ekki sj\u00e1lfr\u00e1\u00f0 ger\u00f0a \u00feinna. Og vitir \u00fear aflei\u00f0andi ekki, hva\u00f0 \u00fe\u00fa gerir. Reyndar skilst m\u00e9r, a\u00f0 \u00fe\u00fa <strong>neitir \u00fev\u00ed n\u00fa or\u00f0i\u00f0<\/strong>, a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir nokkru sinni veri\u00f0 veik \u2013 og viljir telja sj\u00e1lfri \u00fe\u00e9r og \u00f6\u00f0rum tr\u00fa um, a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir veri\u00f0 f\u00f3rnarlamb \u00feeirra, sem s\u00edst skyldi \u2013 \u00feinnar n\u00e1nustu fj\u00f6lskyldu. \u00c1 \u00fea\u00f0 kannski a\u00f0 vera r\u00e9ttl\u00e6tingin fyrir \u00f6llu \u00feessu hatri?<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Hven\u00e6r t\u00f3kst \u00fe\u00fa upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 brei\u00f0a \u00fat allar \u00feessar s\u00f6gur um f\u00f6\u00f0ur \u00feinn?&nbsp; <strong>Lengi vel var m\u00f3\u00f0ir \u00fe\u00edn helsti skotsp\u00f3nn haturs \u00fe\u00edns<\/strong>. Hven\u00e6r breyttist \u00fea\u00f0 \u2013 og beindist fremur a\u00f0 f\u00f6\u00f0urnum? S\u00f6gubur\u00f0urinn er s\u00edbreytilegur eins og venjulega, \u00feegar um uppspuna er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Og n\u00fa skirrist \u00fe\u00fa ekki vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 draga mitt nafn inn \u00ed \u00feennan s\u00f6gubur\u00f0. <strong>\u00dea\u00f0 veit s\u00fa sem allt veit, a\u00f0 \u00fe\u00fa fer\u00f0 me\u00f0 \u00f3sannindi. <\/strong>Og \u00fe\u00e6r, sem \u00fe\u00fa nafngreinir \u00ed r\u00f3gsbr\u00e9finu eru rei\u00f0ub\u00fanar a\u00f0 sta\u00f0festa<strong>, a\u00f0 \u00fe\u00fa fer\u00f0 me\u00f0 uppspuna og r\u00f3gbur\u00f0<\/strong>.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Hvers vegna allt \u00feetta <strong>\u00f3stj\u00f3rnlega hatur<\/strong>? \u00deetta var\u00f0ar ekki bara f\u00f6\u00f0ur okkar og mig, heldur alla okkar fj\u00f6lskyldu og eitrar \u00fat fr\u00e1 s\u00e9r \u00ed \u00feri\u00f0ja \u00e6ttli\u00f0. \u00de\u00fa gefur \u00ed skyn, a\u00f0 fa\u00f0ir minn hafi misnota\u00f0 mig \u00ed \u00e6sku, og a\u00f0 \u00fea\u00f0 eigi a\u00f0 sk\u00fdra heg\u00f0un m\u00edna \u00ed sambandi vi\u00f0 \u00feennan mann og endalok \u00feess. \u00de\u00fa \u00feykist gera mig \u00e1byrga fyrir \u00fev\u00ed. Ef \u00fe\u00fa bara vissir, hva\u00f0 \u00fe\u00fa ert a\u00f0 fleipra um. \u00de\u00fa ert ekki bara a\u00f0 grafa undan m\u00ednum tr\u00faver\u00f0ugleika sem manneskju, heldur ert \u00fe\u00fa jafnframt <strong>a\u00f0 gera l\u00edti\u00f0 \u00far sl\u00edkum gl\u00e6pum og f\u00f3rnarl\u00f6mbum \u00feeirra. <\/strong>Br\u00e9f \u00feitt segir \u00fev\u00ed mi\u00f0ur mest um h\u00f6fund \u00feess, en minnst um \u00fe\u00e1, sem veist er a\u00f0. <strong>A\u00f0 bendla okkur hin vi\u00f0 \u00e1sakanir \u00fe\u00ednar \u00e1 hendur f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00ednum er ekki bara andstyggilegt \u2013 \u00fea\u00f0 er b\u00e6\u00f0i lj\u00f3tt og si\u00f0laust. Og var\u00f0ar reyndar vi\u00f0 l\u00f6g.<\/strong><\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00dea\u00f0 er ekki til of mikils m\u00e6lst, a\u00f0 \u00fe\u00fa h\u00e6ttir \u00feessum <strong>r\u00f3gbur\u00f0i um f\u00f6\u00f0ur \u00feinn, mig og a\u00f0ra<\/strong>, sem \u00fe\u00fa hefur nafngreint a\u00f0 tilefnislausu. Lengi vel leiddum vi\u00f0 \u00feetta hj\u00e1 okkur, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa v\u00e6rir veik. Ef \u00fe\u00fa hafnar \u00fev\u00ed og segist gera \u00feetta vitandi vits og af \u00e1settu r\u00e1\u00f0i \u2013 \u00fe\u00e1 er ekki lengur h\u00e6gt a\u00f0 l\u00e1ta r\u00f3ginn sem vind um eyru \u00fej\u00f3ta \u2013 sem \u00f3ra \u00ed sj\u00fakum huga. \u00de\u00e1 ver\u00f0ur \u00fe\u00fa einfaldlega, eins og hver \u00f6nnur \u00e6rleg manneskja,&nbsp; a\u00f0 vera rei\u00f0ub\u00fain a\u00f0 taka aflei\u00f0ingum ger\u00f0a \u00feinna.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c1\u00f0ur en \u00e1 \u00fea\u00f0 reynir, getur \u00fe\u00fa reynt a\u00f0 b\u00e6ta fyrir \u00feann ska\u00f0a, sem \u00fe\u00fa hefur \u00feegar valdi\u00f0 saklausum einstaklingum, me\u00f0 <strong>\u00fev\u00ed a\u00f0 bi\u00f0jast fyrirgefningar<\/strong>. Og lofa upp \u00e1 \u00e6ru og tr\u00fa, a\u00f0 \u00fe\u00fa munir framvegis og h\u00e9r me\u00f0 l\u00e1ta af \u00feessari i\u00f0ju. \u00de\u00e1 v\u00e6rir \u00fe\u00fa ma\u00f0ur a\u00f0 meiri.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g skrifa \u00feetta br\u00e9f pers\u00f3nulega. \u00c1ritun systkina minna og annarra,sem \u00fe\u00fa hefur nafngreint \u00ed s\u00f6gubur\u00f0inum, t\u00e1knar a\u00f0 vi\u00f0 erum samm\u00e1la um a\u00f0 segja vi\u00f0 \u00feig: <strong>Hinga\u00f0 \u2013 en ekki lengra<\/strong><\/em><strong>. <\/strong>(Leturbreytingar eru m\u00ednar \u2013 JBH)<\/p>\n\n\n\n<p><strong>Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur\u201c<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p><strong>Vi\u00f0 \u00feessu br\u00e9fi barst aldrei neitt svar.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<H4>3. Vitnisbur\u00f0ur Kolfinnu: <\/H4>\n\n\n\n<p>&nbsp;\u201e<em>Byrjum \u00e1 byrjuninni. Ritstj\u00f3ri N\u00fds l\u00edfs birtir mynd af Gu\u00f0r\u00fanu Har\u00f0ard\u00f3ttur, sem er \u00fe\u00e1 s\u00f6g\u00f0 vera t\u00edu \u00e1ra, um \u00fea\u00f0 leyti, sem h\u00fan \u00e1 a\u00f0 hafa or\u00f0i\u00f0 fyrir kynfer\u00f0islegri \u00e1reitni af h\u00e1lfu J\u00f3ns Baldvins. Lengra ver\u00f0ur t\u00e6past gengi\u00f0 \u00ed a\u00f0 vega a\u00f0 \u00e6ru manns.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Til sannindamerkis um, a\u00f0 \u00feessi \u00e1k\u00e6ra eigi vi\u00f0 einhver r\u00f6k a\u00f0 sty\u00f0jast, eru tilgreind tv\u00f6 atvik, \u00feegar Gu\u00f0r\u00fan er t\u00f3lf og fimmt\u00e1n \u00e1ra, fyrir meira en h\u00e1lfum \u00f6\u00f0rum \u00e1ratug. \u00dear me\u00f0 er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 blanda m\u00e9r og b\u00f6rnunum m\u00ednum inn \u00ed m\u00e1li\u00f0, sem og systur minni, Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0i, auk m\u00f3\u00f0ur okkar. <strong>Vi\u00f0 vorum nefnilega \u00f6ll vi\u00f0st\u00f6dd<\/strong> \u00feessi tilgreindu atvik og vitum \u00fev\u00ed, um hva\u00f0 er veri\u00f0 a\u00f0 tala. Sj\u00f3n er s\u00f6gu r\u00edkari. Vi\u00f0 \u00feurfum ekki a\u00f0 rei\u00f0a okkur \u00e1 fr\u00e1s\u00f6gn annarra. Vi\u00f0 erum \u00f6ll sannf\u00e6r\u00f0 og samm\u00e1la um, a\u00f0 <strong>\u00fearna \u00e1tti engin kynfer\u00f0sleg \u00e1reitni s\u00e9r sta\u00f0<\/strong>.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>Hvers vegna var ekki k\u00e6rt fyrr en eftir d\u00fak og disk? \u00dea\u00f0 er einfaldlega af \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00fea\u00f0 hvarfla\u00f0i ekki a\u00f0 neinum \u2013 hvorki Gu\u00f0r\u00fanu, a\u00f0standendum hennar n\u00e9 okkur hinum \u2013 a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i veri\u00f0 beitt kynfer\u00f0islegri \u00e1reitni. \u00d6ll okkar samskipti n\u00e6stu \u00e1rin sta\u00f0festa \u00feetta. \u2026Hva\u00f0 stendur \u00fe\u00e1 eftir? Tilraun til mannor\u00f0smor\u00f0s, sem hefur ekki anna\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 sty\u00f0jast en s\u00f6gusagnir og \u2013 eftir\u00e1spuna.<\/em><em>\u201d (2<\/em>8.04.12)<\/p>\n\n\n\n<H3>4. M\u00c1L GU\u00d0R\u00daNAR HAR\u00d0ARD\u00d3TTUR:<\/H3>\n\n\n\n<p>Af \u00f6llum \u00feeim sakagiftum, sem \u00e1 mig hafa veri\u00f0 bornar, og veri\u00f0 til lykta leidd, eru m\u00e1l kennd vi\u00f0 Gu\u00f0r\u00fanu Har\u00f0ard\u00f3ttur \u00feau einu, sem hafa haft sinn gang \u00ed r\u00e9ttarkerfinu. Hin hafa \u00f6ll veri\u00f0 rekin <strong>\u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum<\/strong>.<\/p>\n\n\n\n<p>Fyrri k\u00e6ran (2005) sn\u00e9rist um meinta kynfer\u00f0islega \u00e1reitni vi\u00f0 Gu\u00f0r\u00fanu sem barn. K\u00e6runni var v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1, enda var\u00f0 vitnum vi\u00f0 komi\u00f0 eins og vitnisbur\u00f0urinn h\u00e9r a\u00f0 framan sta\u00f0festir.<\/p>\n\n\n\n<p>Seinni k\u00e6ran (2006-07) sn\u00e9rist um \u00fea\u00f0, hvort efni br\u00e9fs sem fylgdi b\u00f3karsendingu til Gu\u00f0r\u00fanar, \u00fear sem h\u00fan var skiptinemi \u00ed Venezuela, g\u00e6ti \u201cs\u00e6rt blyg\u00f0unarkennd\u201d vi\u00f0takandans. Og vi\u00f0takandinn var <strong>17 \u00e1ra,<\/strong> ekki \u00e1 barnsaldri. K\u00e6ran var ranns\u00f6ku\u00f0 me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af framl\u00f6g\u00f0um g\u00f6gnum og me\u00f0 yfirheyrslum og vitnalei\u00f0slum. Ni\u00f0ursta\u00f0an var s\u00fa sama: K\u00e6runni var v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1, \u00fear sem ekki fannst tilefni til sakfellingar.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00de\u00f3tt efni br\u00e9fs hafi hvorki r\u00e9ttl\u00e6tt \u00e1k\u00e6ru n\u00e9 leitt til sakfellingar a\u00f0 l\u00f6gum, getur \u00fea\u00f0 veri\u00f0 \u00f3vi\u00f0urkv\u00e6milegt og \u00f3s\u00e6milegt, \u00fe\u00f3tt ekki \u00feyki \u00fea\u00f0 refsivert \u00ed skilningi laga. \u00de\u00e1 er til b\u00f3ta a\u00f0 br\u00e9f m\u00e1 endursenda. Vi\u00f0takandi getur l\u00edka \u00e1tt r\u00e9tt \u00e1 afs\u00f6kunarbei\u00f0ni.<\/p>\n\n\n\n<p>Hver voru vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 m\u00edn \u00feegar \u00e9g ger\u00f0i m\u00e9r lj\u00f3st a\u00f0 m\u00e9r hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 alvarlega \u00e1? \u00c9g j\u00e1ta\u00f0i brot mitt fyrirvara- og fortakslaust og \u00fer\u00e6tti ekki fyrir neitt. \u00c9g \u00e1stunda\u00f0i hvorki \u00fe\u00f6ggun n\u00e9 yfirhylmingu. \u00c9g skamma\u00f0ist m\u00edn, i\u00f0ra\u00f0ist, leita\u00f0i \u00e1sj\u00e1r og ba\u00f0st fyrirgefningar. \u00c9g vi\u00f0urkenndi a\u00f0 efni br\u00e9fsins v\u00e6ri \u00f3s\u00e6milegt. \u00c9g \u00e1tta\u00f0i mig \u00e1 \u00fev\u00ed, eftir \u00e1, a\u00f0 vi\u00f0takandinn haf\u00f0i engar forsendur til a\u00f0 skilja hvort heldur var b\u00f3k e\u00f0a br\u00e9f, sem \u00e1ttu ekkert erindi vi\u00f0 hana.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g j\u00e1ta\u00f0i \u00fev\u00ed \u00e1 mig d\u00f3mgreindarbrest og ba\u00f0st fyrirgefningar. \u00c9g skrifa\u00f0i Gu\u00f0r\u00fanu sj\u00e1lfri afs\u00f6kunarbr\u00e9f (Apr\u00edl, 2002). \u00dear segir m.a.:<\/p>\n\n\n\n<p>\u201c<em>Au\u00f0vita\u00f0 s\u00e6rir \u00fea\u00f0 mig a\u00f0 heyra \u00far \u00fdmsum \u00e1ttum s\u00f6gubur\u00f0, haf\u00f0an eftir \u00fe\u00e9r, um a\u00f0 \u00e9g hafi \u00e1reitt \u00feig kynfer\u00f0islega sem barn<strong>. \u00c9g veit a\u00f0 \u00fe\u00fa veist a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki satt. \u00c9g hef aldrei \u00fer\u00f6ngva\u00f0 \u00fe\u00e9r til neinna atlota, ekki snert \u00feig, ekki kysst \u00feig<\/strong> nema \u00e1 b\u00e1\u00f0a vanga, eins og \u00e9g geri vi\u00f0 alla sem m\u00e9r \u00feykir v\u00e6nt um. \u00deetta veit \u00e9g a\u00f0 \u00fe\u00fa veist, og \u00fea\u00f0 n\u00e6gir m\u00e9r.\u201d<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><strong>Vi\u00f0 \u00feessari afs\u00f6kunarbei\u00f0ni hefur aldrei borist neitt svar.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g bau\u00f0st einnig til a\u00f0 hitta fj\u00f6lskylduna til a\u00f0 bera fram afs\u00f6kunarbei\u00f0ni m\u00edna augliti til auglitis. \u00c9g bau\u00f0st til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 hvern \u00feann, sem fj\u00f6lskyldan kysi s\u00e9r til fulltingis, s\u00e1lfr\u00e6\u00f0inga, f\u00e9lagsr\u00e1\u00f0gjafa e\u00f0a a\u00f0ra millig\u00f6ngumenn, til \u00feess a\u00f0 <strong>sannleikurinn \u00ed m\u00e1linu yr\u00f0i leiddur \u00ed lj\u00f3s<\/strong> og misskilningi, tortryggni og grunsemdum yr\u00f0i eytt.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c9g hef j\u00e1ta\u00f0 mitt brot. \u00c9g hef l\u00edka be\u00f0ist fyrirgefningar og leita\u00f0 hj\u00e1lpar til a\u00f0 koma \u00e1 s\u00e1ttaumleitunum. \u00cd tvo \u00e1ratugi hefur \u00feeirri vi\u00f0leitni veri\u00f0 m\u00e6tt me\u00f0 \u00edskaldri \u00fe\u00f6gn, \u00f3s\u00f6nnum s\u00f6gubur\u00f0i, illm\u00e6lgi \u00e1 bak, hatri og hefnigirni. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur er \u00fea\u00f0 svo, a\u00f0 \u00fea\u00f0 er <strong>hatur og hefnigirni<\/strong>, sem a\u00f0 baki b\u00fdr. Hatri\u00f0 er ska\u00f0r\u00e6\u00f0isskepna. \u00dea\u00f0 bitnar ekki bara \u00e1 \u00feeim sem fyrir \u00fev\u00ed ver\u00f0a. \u00dea\u00f0 eitrar l\u00edka l\u00edf \u00feeirra sem h\u00fdsa \u00fea\u00f0 og n\u00e6ra.<\/p>\n\n\n\n<H3>5. SV\u00d6R VI\u00d0 S\u00d6GUBUR\u00d0I:<\/H3>\n\n\n\n<p>A\u00f0 \u00fev\u00ed er var\u00f0ar allan \u00feann s\u00f6gubur\u00f0, sem ritst\u00fdrt hefur veri\u00f0 af Ald\u00edsi d\u00f3ttur okkar allt fr\u00e1 \u00e1rinu 2013, vil \u00e9g taka fram eftirfarandi:<\/p>\n\n\n\n<p>1) S\u00f6gum hinna <strong>nafngreindu <\/strong>hef \u00e9g \u00feegar svara\u00f0 (www.jbh.is &#8211; S\u00f6gubur\u00f0ur.) Um sannleiksgildi \u00feessa s\u00f6gubur\u00f0ar getur hver og einn d\u00e6mt fyrir sig. \u00c9g l\u00e6t n\u00e6gja h\u00e9r a\u00f0 taka sem d\u00e6mi n\u00fdjustu s\u00f6guna. Um hana segir eina \u00f3hlutdr\u00e6ga vitni\u00f0 \u00ed yfirheyrslu hj\u00e1 l\u00f6greglu: <strong>\u201c\u00deetta er hreinn tilb\u00faningur og t\u00f3mt rugl<\/strong>.\u201d<\/p>\n\n\n\n<p>2) A\u00f0 \u00fev\u00ed er var\u00f0ar hinar <strong>nafnlausu<\/strong> er \u00feetta a\u00f0 segja: \u00cd upphafi taldi \u00e9g mig vera varnarlausan eins og jafnan er um \u00fe\u00e1 sem vegi\u00f0 er a\u00f0 \u00far launs\u00e1tri. En vi\u00f0 n\u00e1nari sko\u00f0un kom \u00e1 daginn a\u00f0 unnt var a\u00f0 sannreyna eina s\u00f6guna \u00fat fr\u00e1 stund og sta\u00f0. S\u00fa saga reyndist vera <strong>hreinn sk\u00e1ldskapur.<\/strong>&nbsp; \u00de\u00e1 vaknar spurningin: Gegnir kannski sama m\u00e1li um allar hinar? Svari\u00f0 vi\u00f0 \u00feeirri spurning er \u00feetta:<\/p>\n\n\n\n<p><strong><em>Vandleg sko\u00f0un og k\u00f6nnun \u00e1 sta\u00f0reyndum og sannleiksgildi fullyr\u00f0inga lei\u00f0ir \u00ed lj\u00f3s, a\u00f0 flestar \u00feessara fr\u00e1sagna eru sannanlega \u00fdmist uppspuni fr\u00e1 r\u00f3tum e\u00f0a f\u00e1 ekki sta\u00f0ist af \u00f6\u00f0rum \u00feartilgreindum \u00e1st\u00e6\u00f0um<\/em><\/strong><em> (<\/em>sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.jbh.is\">www.jbh.is<\/a> \u2013 Sannleikurinn fyrsta f\u00f3rnarlambi\u00f0<em>).<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>Hinar, sem eftir standa eiga \u00fea\u00f0 sammerkt a\u00f0 \u00fear er ekkert sem h\u00f6nd \u00e1 festir; hvorki hvar n\u00e9 hven\u00e6r e\u00f0a hverjir eigi \u00ed hlut. Um \u00fea\u00f0 gildir \u00fea\u00f0 sama og sag\u00f0i \u00ed fr\u00e1v\u00edsun l\u00f6greglustj\u00f3raemb\u00e6ttisins \u00ed okt\u00f3ber 2013 \u00e1 s\u00f6gum eftir \u00f3nafngreinda h\u00f6funda, a\u00f0 s\u00f6gubur\u00f0ur af \u00feessu tagi er \u201c\u00f3markt\u00e6kur\u201d. \u00dea\u00f0 er engin lei\u00f0 a\u00f0 kanna sannleiksgildi me\u00f0 v\u00edsan til sta\u00f0reynda. En \u00fea\u00f0 er l\u00edka ekkert sem gefur \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 \u00e6tla, a\u00f0 sannleiksgildi\u00f0 s\u00e9 anna\u00f0 og meira en hj\u00e1 hinum.<\/p>\n\n\n\n<p>Sannast sagna flokkast m\u00f6rg \u00feessara umm\u00e6la undir \u00fea\u00f0, sem n\u00fa gengur undir nafninu \u201c<em>hatursumr\u00e6\u00f0a\u201d.<\/em> Eitt d\u00e6mi af m\u00f6rgum: Aldurhnigin kona l\u00e6tur hafa eftir s\u00e9r eftirfarandi or\u00f0 um okkur Brynd\u00edsi:<\/p>\n\n\n\n<p><strong>\u201cH\u00fan (Brynd\u00eds) er alveg eins og hann. Gr\u00edpur utanum kinf\u00e6ri (sic) ungra manna \u00e1 fyllir\u00edum\u201d.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>S\u00fa sem \u00feetta segir er auglj\u00f3slega gersneidd allri s\u00f3makennd \u2013 og \u00fe.a.l. er ekkert mark takandi \u00e1 \u00fev\u00ed, sem eftir henni er haft.<\/p>\n\n\n\n<p>Sama soramarki\u00f0 er \u00e1 m\u00f6rgum \u00feessara umm\u00e6la. \u00deau eru \u00ed sj\u00e1lfu sj\u00e1lfu s\u00e9r haldb\u00e6r r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed, a\u00f0 r\u00e9ttast v\u00e6ri a\u00f0 loka \u00feessari MeToo \u2013 g\u00e1tt, \u00ed nafni \u00feess a\u00f0 verja tj\u00e1ningarfrelsi\u00f0 fyrir hatursumr\u00e6\u00f0u og mannr\u00e9ttindi f\u00f3rnarlambanna fyrir d\u00f3mst\u00f3li g\u00f6tunnar. \u00cd nafni almenns vels\u00e6mis.<\/p>\n\n\n\n<p>Hva\u00f0 stendur \u00fe\u00e1 eftir?<\/p>\n\n\n\n<p>Svar: <strong>Hatri\u00f0 og hefnigirndin.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Eftir \u00f3tal s\u00e1ttatilraunir sneri br\u00f3\u00f0ir Brynd\u00edsar til baka me\u00f0 \u00feessi skilabo\u00f0 \u201c<strong>S\u00e1ttatilraunir \u2013 \u00fei\u00f0 geti\u00f0 gleymt \u00fev\u00ed. Ykkur m\u00e6tir ekkert nema svartn\u00e6tti af hatri\u201d.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<H3>6. SEKUR \u2013 \u00de\u00d3TT D\u00c6MDUR S\u00c9 SAKLAUS?<\/H3>\n\n\n\n<p>\u00c9g hef nota\u00f0 or\u00f0i\u00f0 fj\u00f6lskylduharmleik um \u00fea\u00f0 sem er a\u00f0 gerast \u00ed \u00feessu d\u00f3msm\u00e1li. <em>Mala domestica lacrimes majores sunt.<\/em> Fj\u00f6lskyldub\u00f6li\u00f0 er \u00feyngra en t\u00e1rum taki, eins og Brynj\u00f3lfur Sk\u00e1lholtsbiskup komst a\u00f0 or\u00f0i for\u00f0um daga. \u00dea\u00f0 er \u00feess vegna sem \u00e9g er einl\u00e6glega \u00feeirrar sko\u00f0unar a\u00f0 \u00feetta r\u00e9ttarhald hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 vera loka\u00f0.&nbsp; Vi\u00f0 erum h\u00e9r a\u00f0 fjalla um vi\u00f0kv\u00e6m fj\u00f6lskyldum\u00e1l, sem vi\u00f0 eigum a\u00f0 for\u00f0ast a\u00f0 bera \u00e1 torg.<\/p>\n\n\n\n<p>Sj\u00e1lfum finnst m\u00e9r \u00fea\u00f0 <strong>hreinn n\u00ed\u00f0ingsskapur<\/strong> a\u00f0 gera \u00f3g\u00e6fu annarra s\u00e9r a\u00f0 f\u00e9\u00fe\u00fafu og skeyta \u00ed engu um, hva\u00f0 er satt e\u00f0a logi\u00f0 \u00ed \u00f3hr\u00f3\u00f0rinum, sem \u00fat er borinn. En \u00fea\u00f0 er b\u00fai\u00f0 og gert. Vi\u00f0 st\u00f6ndum frammi fyrir or\u00f0num hlut, svo ekki ver\u00f0ur aftur sn\u00fai\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Um l\u00edkt leyti og a\u00f0f\u00f6rin gegn m\u00e9r og fj\u00f6lskyldu minni st\u00f3\u00f0 sem h\u00e6st \u00ed byrjun \u00e1rs 2019 birtu St\u00edgam\u00f3t s\u00edna \u00e1rlegu sk\u00fdrslu um \u00feolendur kynfer\u00f0isofbeldis, sem til \u00feeirra h\u00f6f\u00f0u leita\u00f0 \u00e1 \u00e1rinu 2018. \u00dear kom m.a. fram, a\u00f0 321 kona sag\u00f0ist hafa or\u00f0i\u00f0 fyrir nau\u00f0gun e\u00f0a nau\u00f0gunartilraun og 127 s\u00f6g\u00f0ust vera \u00feolendur sifjaspella. M.\u00f6.o <strong>448 konur leitu\u00f0u s\u00e9r hj\u00e1lpar vegna gr\u00f3fra ofbeldisverka,<\/strong> sem \u00fe\u00e6r h\u00f6f\u00f0u or\u00f0i\u00f0 fyrir, a\u00f0 eigin s\u00f6gn.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deetta n\u00e1\u00f0i \u00ed fr\u00e9ttir \u00feann daginn \u2013 en s\u00ed\u00f0an ekki s\u00f6guna meir. Segir \u00feetta ekki allt sem segja \u00fearf um \u00feennan m\u00e1lab\u00fana\u00f0, sem h\u00e9r hefur veri\u00f0 ger\u00f0ur a\u00f0 umtalsefni? Sannanlega upplognar s\u00f6gur um meintar \u00e1vir\u00f0ingar \u00feekktra einstaklinga \u00feykja auglj\u00f3slega vera f\u00edn s\u00f6luvara. En \u00feegar \u00fe\u00e6r reynast ekki vera \u00e1 r\u00f6kum reistar er \u00f3tv\u00edr\u00e6tt veri\u00f0 a\u00f0 grafa undan tr\u00faver\u00f0ugleika \u00feeirra, sem eru \u00feolendur <strong>raunverulegs kynfer\u00f0isofbeldis<\/strong>. H\u00f3purinn \u00ed kringum Ald\u00edsi sem hefur teki\u00f0 nafn #metoo hreyfingarinnar traustataki, hefur einmitt gerst sig sekan um \u00fea\u00f0.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p><strong>#metoo hreyfingin<\/strong> var \u00ed upphafi mannr\u00e9ttindahreyfing. Henni var \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 r\u00e9tta hlut kvenna, sem or\u00f0i\u00f0 hafa fyrir raunverulegu kynfer\u00f0isofbeldi (nau\u00f0gun, heimilisofbeldi og k\u00fagun \u00e1 vinnust\u00f6\u00f0um). Eins og allar mannr\u00e9ttindahreyfingar fyrr og s\u00ed\u00f0ar stendur \u00feessi hreyfing frammi fyrir vali: \u00c6tlar h\u00fan a\u00f0 einbeita s\u00e9r a\u00f0 umb\u00f3tum \u00e1 r\u00e9ttarkerfinu? E\u00f0a krefst h\u00fan \u00feess a\u00f0 taka r\u00e9ttv\u00edsina \u00ed eigin hendur? Og skeytir \u00fe\u00e1 engu um afle\u00f0ingarnar? <strong>\u00dear me\u00f0 skal hver s\u00e1, sem \u00e1k\u00e6r\u00f0ur er \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum, teljast sekur \u00e1n ranns\u00f3knar, \u00e1n r\u00e9ttarhalda, \u00e1n vitnalei\u00f0slu, \u00e1n \u00farskur\u00f0ar hlutlauss d\u00f3mara<\/strong>. \u00dear me\u00f0 er r\u00e9ttarr\u00edki\u00f0 \u2013 helsta dj\u00e1sn vestr\u00e6nnar menningar \u2013 t\u00fdnt og tr\u00f6llum gefi\u00f0. Viljum vi\u00f0 \u00fea\u00f0?&nbsp; <strong>\u00deeirri spurningu ver\u00f0um vi\u00f0 \u00f6ll a\u00f0 svara<\/strong>.<\/p>\n\n\n\n<p>Fimm sinnum \u00e1 sl. tveimur \u00e1ratugum hafa s\u00f6mu a\u00f0ilar lagt fram k\u00e6rur \u00e1 hendur m\u00e9r um kynfer\u00f0islega \u00e1reitni. <strong>Fimm sinnum hefur \u00feessum k\u00e6rum veri\u00f0 v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1 a\u00f0 lokinni ranns\u00f3kn <\/strong>(2002, 2005, 2007, 2013 og 2014). \u00dea\u00f0 er kominn t\u00edmi til a\u00f0 binda endi \u00e1 \u00feessa a\u00f0f\u00f6r \u00ed eitt skipti fyrir \u00f6ll. Flestum kann a\u00f0 \u00feykja \u00fea\u00f0 \u00f6fugsn\u00fai\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 sanna sakleysi sitt s\u00e9rstaklega fyrir d\u00f3mi. En \u00fea\u00f0 er kominn t\u00edmi til a\u00f0 taka af \u00f6ll tv\u00edm\u00e6li.<\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g hef aldrei nau\u00f0ga\u00f0 nokkurri konu.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g hef aldrei \u00fevinga\u00f0 nokkra konu til kynfer\u00f0islegra atlota.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g hef ekki misnota\u00f0 d\u00e6tur m\u00ednar.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><em>\u00c9g hef ekki stunda\u00f0 sifjaspell me\u00f0 elstu d\u00f3ttur minni.<\/em><\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 eina sem \u00e9g fer fram \u00e1 er a\u00f0 \u00e6rumei\u00f0andi fullyr\u00f0ingar af \u00feessu tagi ver\u00f0i d\u00e6mdar \u201c<strong>dau\u00f0ar og \u00f3merkar<\/strong>\u201d.<\/p>\n\n\n\n<H3>7. LOKAOR\u00d0<\/H3>\n\n\n\n<p>\u00c1 v\u00edsindavef&nbsp; H\u00cd segir a\u00f0 m\u00e1lfrelsi sem okkur ber a\u00f0 verja til s\u00ed\u00f0asta bl\u00f3\u00f0dropa leyfi m\u00f6nnum hvorki <strong>a\u00f0 bera lj\u00fagvitni gegn n\u00e1unga s\u00ednum<\/strong> n\u00e9 heldur a\u00f0 ver\u00f0a \u00f6\u00f0rum til ama e\u00f0a tj\u00f3ns me\u00f0 \u00f3sannindum og blekkingum. M\u00e1lfrelsi\u00f0 takmarkast m.\u00f6.o af r\u00e9tti annarra til a\u00f0 nj\u00f3ta sannm\u00e6lis.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd lj\u00f3si \u00feessa spyr \u00e9g: Er \u00fea\u00f0 \u00ed lagi, a\u00f0 fr\u00e9ttama\u00f0ur spyrji engra gagnr\u00fdninna spurninga, kanni hvergi sannleiksgildi? Leiti ekki au\u00f0fenginna uppl\u00fdsinga? Hafi eftir <strong>a\u00f0dr\u00f3ttanir og mei\u00f0yr\u00f0i,<\/strong> sem honum\/henni m\u00e1 vera lj\u00f3st fyrirfram, a\u00f0 r\u00e9ttarkerfi\u00f0 hefur v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1. Eins og t.d. \u00feessi sv\u00edvir\u00f0ilega \u00e1s\u00f6kun um sifjaspell \u2013 grafalvarlegan gl\u00e6p &#8211; sem b\u00e6\u00f0i ranns\u00f3knarl\u00f6greglan (13. Jan. 2014) og r\u00edkissaks\u00f3knari (28. Feb. 2014) hafa v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1 sem \u00f3tr\u00faver\u00f0ugum. \u00dear me\u00f0 hefur R\u00daV teki\u00f0 s\u00e9r d\u00f3msvald sem er sk\u00fdrt og kl\u00e1rt brot \u00e1 l\u00f6gum um R\u00edkis\u00fatvarpi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>E\u00f0a um valdamanninn mikla, sem \u00e1 a\u00f0 geta siga\u00f0 l\u00f6greglu \u00e1 saklaust f\u00f3lk og l\u00e1ti\u00f0 nau\u00f0ungarvista \u00fea\u00f0 og pynta; sem ney\u00f0ir ge\u00f0l\u00e6kna til a\u00f0 greina sj\u00faklinga ranglega til a\u00f0 geta framlengt nau\u00f0ungarvistun? Og getur skipa\u00f0 r\u00e1\u00f0uneytum fyrir verkum og jafnvel sj\u00e1lfum d\u00f3msst\u00f3lunum?&nbsp; \u00deetta eru grafalvarlegar \u00e1sakanir um botnlausa spillingu \u00ed \u00fdmsum lykilstofnunum \u00edslensks samf\u00e9lags, hvorki meira n\u00e9 minna. Hva\u00f0 dvelur hina sj\u00e1lfskipu\u00f0u ranns\u00f3knarbla\u00f0amenn R\u00daV \u00ed a\u00f0 fl\u00e9tta me\u00f0 kerfisbundnum h\u00e6tti ofan af \u00feessari spillingu?<\/p>\n\n\n\n<p>Erum vi\u00f0 st\u00f6dd \u00ed R\u00fasslandi P\u00fatins e\u00f0a \u00ed S\u00e1d\u00ed-Arab\u00edu?<\/p>\n\n\n\n<p><strong>\u00deetta er kjarni \u00feessa m\u00e1ls.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>\u00de\u00f3tt fj\u00f6lskylduharmleikurinn s\u00e9 einkam\u00e1l eru a\u00f0rir \u00fe\u00e6ttir \u00feessa m\u00e1ls, sem var\u00f0a okkur \u00f6ll. \u00dea\u00f0 \u00e1 svo sannarlega vi\u00f0 um hlutverk fj\u00f6lmi\u00f0la og samf\u00e9lagsmi\u00f0la \u00ed samt\u00edmanum. <strong>\u00dea\u00f0 er reginmunur \u00e1 ranns\u00f3knarbla\u00f0amennsku og ofs\u00f3knarbla\u00f0amennsku.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd r\u00e9ttarr\u00edki ber a\u00f0 gera strangar kr\u00f6fur til \u00feess a\u00f0 d\u00f3msst\u00f3lar l\u00e1ti ekki stj\u00f3rnast af annarlegum hagsmunum, p\u00f3lit\u00edskum r\u00e9tttr\u00fana\u00f0i e\u00f0a t\u00edskuhreyfingum \u00ed almennings\u00e1liti. Engum \u00e1 a\u00f0 l\u00ed\u00f0ast a\u00f0 taka s\u00e9r sj\u00e1lft\u00f6kur\u00e9tt til a\u00f0 \u00fatsk\u00fafa einstaklingum \u00far samf\u00e9laginu \u00e1 grundvelli upploginna sakargifta \u2013 <strong>\u00e1n d\u00f3ms og laga<\/strong>.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 er ekkert sem r\u00e9ttl\u00e6tir \u00f3sannar og \u00e6rumei\u00f0andi fullyr\u00f0ingar \u2013 mannor\u00f0smor\u00f0 \u00e1n d\u00f3ms og laga. \u00deess vegna er \u00feetta m\u00e1l flutt, \u00ed trausti \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 b\u00faum enn \u00ed r\u00e9ttarr\u00edki.<\/p>\n\n\n\n<p><em>(H\u00f6fundur er fyrrv. forma\u00f0ur Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokksins, flokks \u00edslenskra jafna\u00f0armanna)<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1. MEI\u00d0YR\u00d0AM\u00c1L Me\u00f0 br\u00e9fi 9. apr\u00edl var R\u00daV (og Ald\u00edsi Schram til vara) gefinn kostur \u00e1 m\u00e1lalokum utan r\u00e9ttar, \u00fe.e. me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e1\u00f0ir a\u00f0ilar b\u00e6\u00f0ust afs\u00f6kunar \u00e1 umm\u00e6lum og vi\u00f0urkenndu a\u00f0 \u00feau v\u00e6ru r\u00f6ng og dr\u00e6gju \u00feau til baka. \u00deessu var svara\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00f6gninni. \u00deess vegna er mei\u00f0yr\u00f0am\u00e1l ney\u00f0ar\u00farr\u00e6\u00f0i. \u00c9g h\u00f6f\u00f0a \u00feetta m\u00e1l gegn &hellip; <a href=\"https:\/\/jbh.is\/?p=3008\" class=\"more-link\">Continue reading<span class=\"screen-reader-text\"> &#8220;R\u00c9TT SKAL VERA R\u00c9TT: UM M\u00c1LFRELSI OG MEI\u00d0YR\u00d0I&#8221;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[1,9],"tags":[],"class_list":["post-3008","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-allar_greinar","category-greinar_og_vidtol"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3008","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3008"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3008\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3034,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3008\/revisions\/3034"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3008"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3008"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jbh.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3008"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}