Þessi mynd var tekin á þjóðhátíðardegi Litáa, 6. júlí, 2021-, þar sem við erum á leið í móttöku í forsetahöllinni.
![](https://jbh.is/bs/wp-content/uploads/2021/08/b_og_jb.jpg)
Myndin vakti óvenjulega athygli og birtist víða á forsíðum blaða. Hvað var maðurinn að gera með regnhlíf á þessum bjarta og heita sumardegi? Svarið er, að fyrr um daginn brast á með þvílíku úrhelli, að borgin var því sem næst á floti. Regnhlífin á því fremur að bera vott um forsjálni mannsins, fremur en óhæfilega bölsýni.