Francis páfi er fallinn frá – háaldraður og saddur lífdaga. Meðfylgjandi orð setti ég á blað fyrir mörgum árum – tæpum áratug eða svo – þ.e.a.s. á meðan Abbas frá Palestínu var enn talinn maður með mönnum, og Francis frá Argentínu nýstsiginn í stól páfa.
Það var rétt eins og tveir gamlir vinir og bræður í anda væru að hittast eftir langan aðskilnað – þeir féllust í faðma, kysstu hvor annan á báða vanga og horfðust brosandi í augu: „Þú hefur yngst um tíu ár, svei mér þá“!, sagði Jorge Mario Bergoglio á ítölsku. „Þú ert að grínast“,svaraði Mahmud Abbas hlæjandi, á arabísku. Þetta var túlkað jafnóðum af ritara páfa, sem er annálaður fjöltyngdur fræðimaður. – Það var reyndar ekki svo langt síðan þessir tveir menn höfðu hist í skuggsælum garði á bak við Vatikanið. Þar hafði Páfinn lýst yfir stuðningi við sjálfstætt ríki Palestínumanna.
Nema hvað, að núna var Abbas, sem fór fyrir Palestinumönnum á Vesturbakkanum, kominn enn á ný til að hitta páfa. Að þessu sinni stóð meðal annars til að hengja á hann æðstu orðu – friðarorðu – sem bara vænstu mönnum er veitt í viðurkenningarskyni. (Gott ef það er ekki upphleypt mynd af engli úr bronsi).
Lesa meira