Brosað gegnum tárin

BROSAÐ GEGNUM TÁRIN er bók um ástina og hamingjuna og um sorgina og harmleikinn. Ævisaga heitra tilfinninga og dramatískra viðburða. Bók sem enginn leggur frá sér – ósnortinn.

BRYNDÍS var ung að árum þjóðkunn sem ballerína, leikkona og fegurðardrottning. Lífshlaup hennar er ævintýri líkast: kennari og skólameistari, blaðamaður og ritstjóri og  fjöltyngd málamanneskja og leiðsögumaður,  þýðandi og höfundur nokkurra bóka, dagskrárgerðarkona og sjónvarpsstjarna. Stjórnandi Kvikmyndasjóðs og – með hennar eigin orðum – ólaunuð eldabuska í þjónustu ríkisins, m.ö.o. sendiherrafrú.

Frá æskuárum hefur hún verið í órofa bandalagi við mesta ástríðupólitíkus landsins. Saman hafa þau unnið stóra sigra á innlendum og alþjóðlegum vettvangi. Samt hefur hún sjaldan setið á friðarstóli. Hvað eftir annað var hún hrakin úr starfi út af pólitík. Óvægin fjölmiðlagagnrýni – eða voru það pólitískar ofsóknir? – rötuðu jafnvel inn í réttarsali.

Höfundur áritar bókina á útgáfudegi

Þegar „hið friðsæla ævikvöld“ nálgaðist, skók fjölþjóðleg forræðisdeila um ömmubarn hennar líf fjölskyldunnar árum saman. Stóra sorgin í lífi hennar  var að missa dóttur sína í blóma lífs. Og fjölskylduharmleikur – sárari en orð fá lýst – varpar dimmum skugga á ævikvöldið. „

Höfundur á útgáfudegi bókar

Brosað gegnum tárin heldur áfram þar sem hin vinsæla bók Bryndísar Í sól og skugga (2008) endaði. Hún segir söguna alla, þar sem höfundur horfist í augu jafnt við hamingjuna sem harmleikinn.  

Bryndís og Jón Baldvin

Umsagnir um bók mína – „Brosað gegnum tárin“, sem kom út í september 2020.

„Ég las bókina í einni lotu. Gat ekki lagt hana frá mér. Að loknum lestri sat ég máttvana og grét. Hvílík lífsreynsla!“ – Sigríður Jóhannesdóttir, prófessor

Þetta er afskaplega falleg bók. Forvitni Bryndísar, ástríða fyrir lífinu – og stílfimi – fleygir manni fram eftir síðunum. Bryndís fer í gegnum lífið með augun opin. Hún er næm á mannfólkið og nýja staði” – Jón Sigurður Eyjólfsson, rithöfundur

“Umfjöllun Bryndísar um fjölskylduharmleikinn er í senn óvægin, sársaukafull og lærdómsrík.  En þrátt fyrir alvarlegan undirtón er frásagnarlist hennar leikandi og létt – og kitlar oft hláturtaugarnar. Hefur líf ballerínunnar verið dans á rósum? Já, vissulega en líka á glerbrotum sem særa og meiða” – Jakob Frímann Magnússon

Kveðja frá Rúnari:
Beittu vilja,viti og aga,
vertu hress á þinni ferð.
Láttu enga depurð draga
dróma yfir þína gerð

Fleiri ritdómar:

Aðalsteinn Flosason

Anna Bergþórsdóttir

Árni Gunnarsson

Árni Sigurðsson

Ásdís Bergþórsdóttir

Brynjólfur Ólafsson, Binni frændi

Elísabet Gunnarsdóttir

Gísli Marteinn

Gunnar Þórðarson

Haraldur Ólafsson

Herdís Hubner

Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir

Jón Sigurður Eyjólfsson

Jón Sigurður Norðkvist

Katrín Gunnarsdóttir Fabbiano

Margrét Hrafnsdóttir

María Henley

Ólafur Þ. Harðarson

Ólína Þorvarðardóttir

Petrína Konný Arthúrsdóttir

Sighvatur Björgvinsson

Sigríður Jóhannesdóttir

Sigríður Ragnheiður

Styrmir Gunnarsson

Viðar Ingason

Þráinn Hallgrímsson

Þröstur Ólafsson

Höfundur les úr bók sinni á Sólon

Sendið tölvupóst á netfangið hbaviati@gmail.com til að fá bókina á afsláttarverði – 3800 kr eða smellið hér til að fara panta bókina beint frá útgefanda.