AF SÖGUFÖLSUNARFÉLAGINU

Mottó:
„…að verma sitt hræ við annarra eld
og eigna sér bráð sem af hinum var felld
var grikkur að raumanna geði“.
(E. Ben. Fróðárhirðin)

Mér hefur borist til eyrna, (seint og um síðir, þar sem ég er einn þeirra fjölmörgu, sem sjá ekki Moggann), að þann 17. sept. s.l. hafi formaður þingflokks Sjálfstæðismanna, Ragnheiður Elín Árnadóttir, birt greinarkorn í Mbl., þar sem hún eignaði frumkvæðið að stuðningi Íslands við sjálfstæði báráttu Eystrasaltsþjóða fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, Þorsteini Pálssyni.

Það mátti ekki seinna vera. Er búið að láta Eystrasaltsbúa vita af þessu? Kannast þeir við manninn? Getur þetta hafa farið framhjá þeim? Í alvöru talað: Mikið hlýtur málefnastaða og sjálfsmynd sjálfstæðismanna á þessum síðustu og verstu dögum eftir HRUN að vera orðin bágborin, fyrst þingflokksformaðurinn telur sæmandi að grípa til svona örþrifaráða til að hressa upp á sálartötrið og sjálfsmyndina.

Stuðningur Íslands við endurreisn sjálfstæðis Eystrasaltsþjóða snerist ekki um eitthvert ímyndað kapphlaup á heimavettvangi um það, hver yrði fyrstur til að viðurkenna sjálfstæði þeirra, til þess að geta montað sig af því hér innan lands. Nóg er nú þjóðremban fyrir á bæ þingflokksformannsins og ekki á hana bætandi. Ótímabærar yfirlýsingar af því tagi hefðu ekki komið Eystrasaltsþjóðum að neinu haldi í háska þeirra.

Stuðningur Íslands við sjálfstæðisbaráttu þessara þjóða á árunum 1988 – 91 snerist um að ljá málstað þeirra rödd okkar á alþjóðavettvangi, þegar þeirra eigin rödd var þögguð niður fyrir atbeina leiðtoga vestrænna lýðræðisríkja á þeim tíma. Þetta gerði utanríkisráðherra Íslands, hvarvetna þar sem hann hafði til þess vettvang: hjá Sameinuðu þjóðunum, í ráðherraráði NATO, í Evrópuráðinu, hjá RÖSE og víðar.

Málið snerist um að skýra málstað þessara þjóða fyrir leiðandi stjórnmálamönnum á Vesturlöndum og að afla fylgis við hann, sem hægt væri að virkja, þegar tækifæri skapaðist til að láta til skarar skríða. Það gerðist við hina miheppnuðu valdaránstilraun í Moskvu, 19. ágúst, 1991. Þá munaði um frumkvæði og samstöðu smáþjóða – þegar sjálfskipuð forysturíki brugðust – og dugði til þess að ekki yrði aftur snúið.

Það er misskilningur, að samþykktir stjórnarandstöðuflokks handa galleríinu heima fyrir hafi skipt einhverju máli í þessu samhengi. Málið var reifað, flutt og unnið á alþjóðavettvangi. Þar kom Sjálfstæðisflokkurinn einfaldlega hvergi við sögu. Um það er svo sem ekkert meira að segja. Hitt má kannski heita guðsþakkarvert, að flokkurinn var ekki á móti, eins og hann var á móti EES í stjórnarandstöðu, en skipti snarlega um skoðun til að komast í ríkisstjórn.

Eftirmáli: Ég hef líka heyrt á skotspónum, að yfirhugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, dæmdur ritþjófur við Háskóla Íslands, hafi skrifað heila grein um sama efni og samviskusamlega gætt þess að nefna aldrei mitt nafn. Það sannar bara, að prófessorinn kann miklu betur til verka við sögufalsanir en þingflokksformaðurinn, enda hefur hann miklu lengri starfsreynslu í faginu. En ósköp finnst mér illa komið fyrir minni þjóð, sem trúir karakterum af þessu tagi fyrir því göfuga hlutverki að uppfræða æskuna.