Meira um sæta stráka. (Svar til Heiðu, sjá póst neðan við fyrri grein)

Það er ævinlega þörf áminning að benda mönnum á að líta í eigin barm. Já, ég var einu sinni ungur og óreyndur. Ég man enn hvað ég var innst inni upp með mér þegar ég spilaði í fyrsta sinn í “landsliðinu”. Þetta var árið 1969 og ég var þrítugur. Það var efnt til kappræðna um inngönguna í EFTA og við vorum þrír framsögumenn: Gylfi Þ Gíslason, viðskiptaráðherra og frumkvöðull málsins, Lúðvík Jósepsson, þrautreyndur pólitískur slagsmálahundur, og svo unglingurinn sjálfur ég. Ég fann það á fundinum að ég var ekki orðinn jafnoki þessara þungavigtarmanna, en hélt þó mínum hlut, að eigin mati, án þess að verða mér til skammar.

En kjarni málsins var þessi. Björn Jónsson, síðar forseti ASÍ, hafði treyst mér til að vera í nefnd, sem var skipuð af þingflokkum og átti að vera þingflokkunum til ráðgjafar um EFTA-málið. Ég átti þátt í því, í náinni samvinnu við Björn, við að snúa samtökum Frjálslyndra og vinstri manna frá andstöðu og til fylgis við málið. Fyrstu fundirnir sem ég tók þátt í vítt og breitt um landið, voru um þetta mál. Ég tók eindregna afstöðu og fylgdi eftir sannfæringu minni og varði þann málstað fyrir hverjum sem var. Þetta var fyrsta prófraun mín í pólitík.

Gagnrýni mín á “sætu strákana” var ekki um það að þá vantaði vit eða þekkingu. Hún snerist um það að þá vantaði kjark – til að fylgja eftir sannfæringu sinni. Báðir þessir menn hafa áður líst þeirri skoðun sinni að hagsmunum Íslands sé best borgið í framtíðinni innan ESB. Bjarni byrjar formannsferil sinn á því að falla frá sannfæringu sinni. Það lýsir kjarkleysi og kallast lýðskrum. Flokksþing Framsóknarflokksins lýsti yfir stuðningi við aðildarviðræður við ESB. Sigmundur Davíð, hinn ungi formaður Framsóknar, er eins og þú segir prýðilega frambærilegur maður og kann að koma fyrir sig orði. En hann felur stefnu flokks síns í Evrópumálum af þeim hyggindum sem í hag koma. Hann heldur að málið sé óvinsælt. Þess vegna læðist hann með veggjum í málinu. Þetta lofar ekki góðu. Gamlir menn hafa reynsluna umfram þá ungu. En ef þeir ungu hafa ekki kjarkinn umfram þá gömul: hvað hafa þeir þá?
Með bestu kveðjum, Jón Baldvin